Skoða efni
hvít hús sem þekja gyllta strandlengju Agadir í Marokkí
22. May 2025

Golf og gylltur sandur í Agadir, Marokkó

Afhverju Agadir?

strandlengja Agadir við Atlantshaf

Agadir er róleg og aðgengileg strandborg á suðvesturströnd Marokkó. Veðrið er hlýtt og sólríkt allan ársins hring, strendurnar fjölbreyttar og borgin einstaklega þægileg hvort sem þú vilt ganga um eða einfaldlega njóta þess að vera í fríi.

Sólarfrí með „meiru“

Smakkaðu ekta tagine, röltu á milli strandkaffihúsa, prófaðu brimbretti, spilaðu golf með útsýni yfir Atlantshafið og endaðu daginn í hammam baðhúsi með myntute í sólsetrinu.

Vinsælustu golfvellirnir í Agadir

Agadir státar sig af nokkrum vönduðum golfvöllum sem njóta vinsælda jafnt hjá byrjendum sem lengra komnum kylfingum.

  • Golf Les Dunes: Völlur með 27 holum í furuskógi, hannaður af Cabell B. Robinson. Hentar þeim sem vilja krefjandi en jafnframt skemmtilegan hring.
  • Golf de l’Océan: Nútímalegur og vel hannaður völlur með 27 holum með útsýni yfir hafið og Atlasfjöllin sem gerir upplifunina einstaklega fallega.
  • Soleil Golf Club: Minni og rólegri völlur sem hentar vel fyrir byrjendur og þá sem sækjast eftir einfaldri og afslappaðri upplifun.

Strendur sem bíða þín

Sólríkur dagur á strandlengju Agadir í Marokkó

Strandlífið í Agadir er ekki af verri endanum. Plage d’Agadir, aðalströndin, er yfir tíu kílómetra löng með silkimjúkum sandi og sól nær alla daga ársins. Þar má finna sólbekki, brimbrettaleigu, hestaferðir, strandbari og veitingastaði meðfram Corniche.

Fyrir þá sem vilja rólegra yfirbragð er tilvalið að heimsækja Taghazout-ströndina, um 20 kílómetrum norður af Agadir. Ströndin er sérstaklega vinsæl meðal brimbrettafólks og þekkt fyrir afslöppuð "surf vibes" sem hefur laðað að sér bæði heimafólk og ferðamenn. Þar má finna nokkra af þekktustu veitingastöðum svæðisins, líkt og World of Waves og Sunset Taghazout.

Önnur róleg og falleg strönd er Imourane, einnig kölluð „Banana Beach“ vegna nálægð hennar við bananaplantekrur. Hún er falleg, minna fjölmenn og tilvalin til að slaka á eftir hring á golfvellinum.

Spennandi?

Skoða beint flug til Agadir

Finna flug

Heilsulind, te og afslöppun

Eftir dag á teignum eða ströndinni er fátt betra en að skella sér í alvöru marokkósk hammam. Þessi gömlu baðhús eru meira en bara bað, þau eru rótgróin slökunarhefð sem sameinar gufu, djúphreinsandi skrúbb og nudd í anda norðurafrískra hefða. Flest hótel bjóða upp á eigin spa eða hammam, en einnig má finna mörg sjálfstæð og vönduð baðhús í miðbænum.

Svo er það auðvitað teið, grænt myntute með ríkulegum sykri, borið fram í fallega skreyttum silfurkönnum, er ómissandi hluti af hverjum degi. Þú færð það á flestum veitingastöðum, á hótelinu, í golfskálanum og á götumörkuðum. Sagan segir líka að það geti bætt sveifluna...

Sparnaðarráð

  • Pantaðu golfpakka með gistingu – margir golfvellir og hótel bjóða upp á hagstæð tilboð fyrir þá sem vilja spila daglega.
  • Veldu rástíma snemma morguns eða síðdegis – þá er bæði rólegra og verð oft hagstæðara.
  • Gisting í Agadir er fjölbreytt – allt frá lúxushótelum til ódýrari gistihúsa og heimagistingar í miðbænum.

Gefðu þér tíma fyrir meira

Þó að golfið og sólin séu kannski ástæður þess að þú ert búin að lesa svona langt, þá er margt annað í Agadir sem réttlætir að dvelja aðeins lengur. Hér bíða sólríkar upplifanir utan vallar: menning, matur og marokkóskar náttúruperlur allt innan seilingar frá strandlínunni og golfvellinum.

La Médina d’Agadir, gamli bærinn

Ef þú vilt upplifa smá ekta Marokkó skaltu rölta í La Médina d’Agadir, handverksþorp sem var endurbyggt í hefðbundnum stíl eftir jarðskjálftann 1960. Hér finnur þú markaði, listamenn og kaffihús með karakter og kannski minjagrip sem fangar litina, ilminn eða stemninguna í Agadir.

Marakóskur Arkitekdúr í miðbæ Agadir, Marokkó

Kasbah Oufella, útsýni og saga

Kasbah Agadir Oufella eru rústir af gömlu virki sem gnæfir yfir borgina, frá toppnum geturðu notið útsýnis yfir Atlantshafið og strendurnar. Þetta er sögulegur staður með heillandi fortíð og nokkuð myndræna framtíð.

Smá út úr borginni?

Ef þú hefur tíma fyrir dagsferð skaltu kíkja í Paradise Valley, og er nafnið á honum nokkuð lýsandi þar sem dalurinn fullur af rauðleitum klettum, pálmatrjám og tærum náttúrulaugum. Hér geturðu vaðið um í kristaltæru vatni, buslað í litlum fossum og leyft náttúrunni að sjá um rest.

Agadir Moroccan architecture old houses and palm tree

Golf, strendur, og betra veður í Marokkó

í Agadir sameinast sól, afslöppun og afþreying á einum stað. Hvort sem þú vilt skora á sjálfan þig á golfvellinum eða slaka á við ströndina eða bæði! Þá er ekkert mál að hvíla kylfurnar og dýfa sér í sjóinn þegar þér hentar.

Bókaðu beint flug til Agadir með PLAY og skelltu þér í sól, golf og gleði við Atlantshafið.
Hvort sem þú ert að leita að hlýju veðri, góðum mat, afslöppun eða aðeins betri forgjöf, þá er Agadir í Marokkó einmitt málið. Pantaðu snemma, veldu góða gistingu, nýttu þér tilboðin og njóttu þess að gera meira fyrir minna.

Spennandi?

Skoðaðu beint flug til Marokkó

Kasbah Ait Ben Haddou í Atlasfjöllum í Marokkó sem var skráð á heimsminjaskrá UNESCO 1987.
NÆST Á DAGSKRÁ

Bestu dagsferðirnar frá Marrakesh