Skoða efni

MyPLAY - Hvað er nú það?

MyPLAY er aðgangurinn þinn að öllum þínum viðskiptum við PLAY. Eftir að þú stofnar aðgang að MyPLAY í fyrsta skipti áttu alltaf greiða leið að þínum upplýsingum og viðskiptum og getur hagrætt bókuninni þinni og þjónustu þegar þér sýnist.

Við leggjum okkur fram um að hafa þetta eins einfalt og hægt er.

Hér fylgja leiðbeiningar um nokkrar algengar aðgerðir inni í MyPLAY eftir að upprunalegri bókun er lokið.

PLAY aircraft

Að búa til MyPLAY aðgang

Það þarf ekki MyPLAY aðgang til að skoða heimasíðuna okkar en um leið og komið er í bókunarferlið og flug er valið þá þarf að innskrá sig eða stofna aðgang.

Til að geta sett upp aðganginn verður þú að fylla inn fullt nafn, netfang og velja lykilorð. Passaðu að gera ekki bil á eftir netfanginu þínu því þá gæti komið villumelding.
Þú byrjar á því að ýta á Stofna aðgang. Þá getur þú fyllt inn allar viðeigandi upplýsingar.

Að því loknu hefur þú stofnað þinn MyPLAY aðgang

Hvað svo?

Mínar bókanir er yfirlitssíðan þín og veitir þér allar þær upplýsingar sem að þú þarft fyrir flugið þitt.

Inni á þínum aðgangi getur þú meðal annars bætt við þjónustu, valið sæti, endursent bókunarstaðfestinguna þína og skoðað komandi flug.

Þar getur þú einnig innritað þig í flugið þitt 24 tímum fyrir brottför. Þetta gæti ekki verið einfaldara.

Að bæta við bókun

Undir Mínar bókanir getur þú bætt bókun við MyPLAY aðganginn þinn. Til þess að bæta bókuninni við þarf að slá inn bókunarnúmer (6 stafa númer sem byrjar á M) og eftirnafn farþega. Eftir að þú hefur bætt þeim upplýsingum við, smellir þú á Bæta við bókun og þá ætti bókunin að birtast undir Næstu flug.

Að setja inn persónuupplýsingar

Áður en lengra er haldið skiptir máli að allar persónuupplýsingar séu hárréttar. Við þurfum að geta náð í þig ef eitthvað breytist og því skaltu fara vel yfir þennan hluta og passa að uppfæra upplýsingarnar ef eitthvað breytist. Smellið á MyPLAY reitinn efst á vefsíðunni. Smellið svo á lundann og þaðan á Mín síða.

Það flýtir fyrir næstu bókun að vista upplýsingar á MyPLAY aðgangi þínum. Þetta sparar mikinn tíma ef þú skellir þér á gott tilboð í borgarferð með félögunum eða þegar þú bókar skíðaferð fyrir alla stórfjölskylduna.
Á mínum síðum getur þú meðal annars vistað farþegaupplýsingar, bætt við ferðafélaga, vistað greiðsluupplýsingar, breytt lykilorði eða eytt notandaaðgangi.

Að bæta við þjónustu

Má maður aðeins? Já, þú mátt bara alveg bóka draumasætið og bæta við farangursheimildina þína og allt þar á milli. Til að bæta þjónustu við bókun er smellt á breyta bókun.

Því næst velur þú hvers konar aukaþjónustu þú vilt bæta við neðar á síðunni.  Hafðu í huga að aðeins er hægt að bæta við og ganga frá greiðslu á einni þjónustu í einu. Ef þú ætlar t.d. að kaupa þér sæti og aukatösku þarftu að gera það í tveimur skrefum.

*Athugaðu að þegar þú bætir aukaþjónustu við flugið þitt hangir þjónustan inni á MyPLAY aðganginum þínum í 30 mínútur þar til gengið er frá greiðslu. Ef þú vilt hætta við það sem þú valdir getur þú annaðhvort beðið í 30 mínútur eða haft samband við þjónustuteymið okkar sem fjarlægir þjónustuna af fluginu. 

Að endursenda bókunarstaðfestingu

Þegar þú bókaðir flugið þitt fékkstu senda bókunarstaðfestingu. Ef þú vilt fá hana endursenda er smellt á flugið og undir bókunarnúmerinu þínu getur þú smellt á endursenda staðfestingartölvupóst.

Að innrita sig

Innritun er skemmtilegust enda sáraeinföld og það eru engar biðraðir á MyPLAY aðganginum þínum.
Til að innrita þig á netinu, þá skráir þú þig inn á MyPLAY aðganginn þinn á heimasíðunni okkar, velur flugið þitt og ýtir á Innritun. Vefinnritun opnar 24 klukkustundum fyrir áætlaðan brottfarartíma og lokar einni klukkustund fyrir áætlaðan brottfarartíma. 
Þú ferð í gegnum nokkur skref í innritunarferlinu, staðfestir nöfn, bætir við farangri ef þú vilt, færð úthlutað sæti (það er hægt að breyta og greiða fyrir sæti ef að þau sæti sem gefin eru upp henta illa), og að lokum er beðið um staðfestingu á ferðaskilríkjum ásamt yfirlestri og samþykki á skilmálum okkar. Þegar þú hefur lokið innritun færðu sent brottfararspjald á netfangið þitt. 

Einfalt, ekki satt?

*Athugið að netinnritun er því miður ekki í boði frá Bologna (BLQ), Genf (GVA) og Salzburg (SZG). Farþegar þurfa því að innrita sig við þjónustuborð á flugvellinum þar.

Hvernig breyti ég bókun á MyPLAY?

Skráðu þig inn á MyPLAY aðganginn þinn til að gera breytingar. Þú ferð í Mínar bókanir og smellir á Breyta bókun.

Smelltu svo á Breyta flugi og þar getur þú gert breytingarnar.

Næst skaltu velja þá farþega og flug sem þarf að breyta og smellir svo á Áfram.

Veldu þá dagsetningu sem þú vilt breyta í og smelltu svo á Staðfesta val.

Eftir að þú hefur smellt á staðfesta val þá færðu upp samantekt og þar ýtir þú á Já, breyttu fluginu mínu.

Þar næst kemur greiðsluferlið. Þá getur þú útfyllt viðeigandi upplýsingar.

Athugið að breytingarnar fara ekki í gegn fyrr en gengið hefur verið frá greiðslu.

 

Þú getur séð þjónustugjöldin okkar hér.

Að eyða aðgangi

Neðst á síðunni er svo hægt að eyða MyPLAY aðganginum í heild sinni sem er sjálfsagður réttur viðskiptavina okkar og mikilvægur hluti af okkar persónuverndarstefnu. Það er gert með því að slá inn lykilorðið í reitinn og velja Eyða reikningnum mínum. Þeir sem vilja nálgast öll gögn sem PLAY geymir um viðkomandi geta sent beiðni á datarequest@flyplay.com.