Skoða efni

Hvernig innrita ég mig á netinu?

Netinnritun er málið - Við biðjum því alla farþega um að innrita sig á netinu.

Netinnritun

Þegar innritun opnar skráir þú þig inn á MyPLAY aðganginn þinn og innritar þig þar. Innritunarferlið sjálft er mjög einfalt og ætti ekki að taka meira en nokkrar mínútur.

Netinnritun opnar 24 klst. fyrir áætlaðan brottfarartíma og lokar 1 klst. fyrir áætlaðan brottfarartíma. Athugið að netinnritun er ekki í boði fyrir okkar flug frá Bologna (BLQ), Genf (GVA) eða Salzburg (SZG). Farþegar sem fljúga frá Bologna, Genf eða Salzburg þurfa að innrita sig við innritunarborð okkar á flugvellinum. Sjá frekari upplýsingar hér.

Athugið að eftir að farþegi hefur innritað sig á netinu er ekki lengur hægt að:

  • Breyta dagsetningu á fluginu
  • Lagfæra nöfn
  • Velja sæti

Þú getur bætt við farangri þegar þú innritar þig á netinu og þangað til netinnritun lokar. Ef þú ætlar að kaupa meiri farangursheimild þarftu að vera með greiðslukortið tilbúið. Þú getur valið um að greiða með því korti sem þú ert búin að vista inn á þinn aðgang eða bætt við nýju korti.

Ef þú ert einungis með handfarangur og ekki með neinn farangur sem þarf að innrita og hefur fengið brottfararspjaldið í hendurnar þá getur þú farið beint í öryggisleit þegar þú mætir á flugvöllinn.

Ef þú klárar netinnritun og gleymir að bæta við farangri er einfalt að fara í gegnum ferlið aftur og bæta við þeim farangri sem þú þarft. Passaðu bara að senda þér nýtt brottfararspjald. Athugaðu að þetta er einungis hægt á meðan netinnritun er opin, eða þar til ​1​ ​klst. ​fyrir áætlaða brottför.

Farþegum er raðað handahófskennt í þau sæti sem eru laus. Ef þú vilt getur þú valið að kaupa þér það sæti sem þú vilt.

Þegar þú hefur innritað þig á netinu munt þú fá brottfararspjaldið sent á netfangið þitt. Þú getur svo notað símann þinn til að skanna brottfararspjaldið við hliðið. Þetta er þinn farmiði inn í flugvélina. Hann sýnir þér áætlaðan brottfarartíma, hvenær brottfararhlið opnar, upplýsingar um númer hliðs ef það er staðfest þegar þú klárar innritun, nafnið þitt og aðrar ferðaupplýsingar sem þú þarft að hafa til reiðu.

Ef þú ferðast með farangur sem þarf að innrita notar þú sjálfsafgreiðslustöðina okkar á flugvellinum í Keflavík til að prenta út töskumiðana þína og brottfararspjald, ef þörf er á því. Til að fá töskumiðana þarftu að skanna brottfararspjaldið þitt eða vegabréf. Þegar þú hefur fengið töskumiðana þína og fest þá við töskuna þarf að skila henni í töskuafhendinguna. Á öðrum flugvöllum þarf að fara á innritunarborð.

Þeir farþegar sem ekki hafa innritað sig eða skilað farangri í töskuafhendingu áður en innritun lýkur geta ekki innritað sig í flugið.

Athugið að miðar eru ekki endurgreiddir og þeim er ekki hægt að breyta ef farþegi missir af fluginu.