Skoða efni

Hjólastólaaðstoð á flugvellinum

Við þurfum að fá að vita hvernig aðstoð þú þarft í síðasta lagi 48 tímum fyrir flugið þitt.  Ef að beiðni berst eftir þann tíma geta orðið tafir á þjónustunni en við munum að sjálfsögðu gera okkar allra besta til að uppfylla það sem beðið er um.

Þú getur bætt sérþjónustu við bókunina þína í bókunarferlinu okkar eða í gegnum MyPLAY aðganginn þinn eftir bókun. Vinsamlegast skoðaðu valkostina hér að neðan og athugaðu hvað hentar þínum þörfum.

Ef þú hefur einhverjar spurningar, ekki hika við að senda okkur tölvupóst á specialassistance@flyplay.com.

WCHR (Hjólastóll að landgangi)

Farþegi þarf hjólastól til að komast um á flugstöðvarsvæði og að flugvél, en getur farið upp og niður tröppur og komið sér sjálfur um farþegarými og í sæti.

WCHS (Hjólastóll að landgangi og aðstoð við þrep)

Farþegi þarf hjólastól til að komast um á flugstöðvarsvæði og að flugvél og þarfnast aðstoðar við að komast upp og niður tröppur. Hins vegar getur farþegi komist sjálfur um farþegarými og í sæti.

WCHC (Hjólastóll að sæti)

Farþegi þarf hjólastól til að komast um á flugstöðvarsvæði og að flugvél og þarf aðstoð við að komast upp og niður tröppur. Farþegi þarf einnig aðstoð við að komast um farþegarými eða í sæti.