Skoða efni

Get ég einungis keypt farangursheimild á netinu?

Nei - það eru fleiri leiðir í boði

Að kaupa farangursheimild

Það eru fimm ólíkar leiðir til að kaupa farangursheimild, alveg frá því þú bókar miðann og þar til ein klukkustund er í flugið þitt.

Valmöguleiki 1 er ávallt ódýrastur. Sama verð á við um val 2 og 3 en þjónustugjald bætist við val 4 og 5.

  1. Þegar bókun er gerð: Þegar þú bókar í upphafi á heimasíðunni okkar er í boði að bæta við aukafarangri.
  2. Eftir að bókun er gerð: Þú kemst inn á MyPLAY aðganginn þinn á heimasíðunni okkar og þar getur þú bætt við aukafarangri, þar til 24 tímar eru í brottför.
  3. Við netinnritun: Þegar það eru minna en 24 tímar í flugið þitt getur þú bætt við aukafarangri þegar þú innritar þig á netinu.
  4. Í gegnum þjónustuteymið: Þú getur haft samband við þjónustuteymið okkar þar til 24 tímum fyrir brottför og bætt við farangri. Athugaðu að greiða þarf aukalega þjónustugjald fyrir það.
  5. Við innritun á flugvellinum: Þú getur líka bætt við farangri við innritun á flugvellinum en hafðu í huga að það er dýrasti valkosturinn.

Vinsamlegast athugið að farangursheimild fæst aldrei endurgreidd.