Skoða efni

Að ferðast með aðstoðarmanneskju

Farþegi má ferðast einn svo lengi sem hann/hún getur gert eftirfarandi án aðstoðar:

  • Losað sætisbelti
  • Sett á sig björgunarvesti
  • Komist að neyðarútgangi
  • Sett á sig súrefnisgrímu
  • Skilið öryggisleiðbeiningar frá áhöfn (myndrænt eða munnlega)
  • Sinnt daglegum athöfnum (borðað, drukkið, farið á klósett, o.s.frv.)

Hvorki áhöfn um borð né fylgdarþjónusta á flugvelli veita aðstoð við daglegar athafnir.

Aðstoð er veitt í flugstöðvarbyggingu og að sæti í flugvélinni ef þörf er á en ekki á salerni eða við aðrar daglegar athafnir.

Farþegi sem er ekki fær um þessar athafnir einn og óstuddur þarf að ferðast með aðstoðarmanneskju.

Ef að breyta á aðstoðarmanneskju í bókun þarf að hafa samband við Þjónustuteymið í síðasta lagi 48 tímum fyrir flug. Greiða þarf nafnabreytingargjald fyrir þá þjónustu.

Áhöfn:

  • Getur ekki lyft eða aðstoðað farþega inni á salerni en getur aðstoðað farþega við að komast til og frá salerninu
  • Aðstoðar ekki við lyfjagjöf
  • Getur aðstoðað farþega við að undirbúa matmálstíma en getur ekki matað farþega

Kröfur varðandi aðstoðarmanneskju:

  • Aðstoðarmanneskjan þarf að hafa náð 16 ára aldri og verður að geta veitt ofangreinda aðstoð í fluginu.
  • Hver aðstoðarmanneskja má ekki aðstoða fleiri en einn farþega í hverju flugi.

Vinsamlegast hafðu samband við Þjónustuteymið ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi ferðalög með aðstoðarmanneskju á specialassistance@flyplay.com.