Skoða efni

Sjálfbærni

Nú getur þú kolefnisjafnað flugið þitt með PLAY með kolefnisjöfnunarverkefnum í hæsta gæðaflokki.

Gróðursettu tré með vottuðum verkefnum

Gróðursetning á trjám er hagkvæmur kostur sem gagnast bæði dýrum og mönnum. Koltvísýringur er fjarlægður úr andrúmsloftinu með verkefnum í hæsta gæðaflokki um allan heim sem sinna skógrækt og jarðvegsvernd.

Gerðu meira en að gróðursetja

Samsetning á náttúrulegum, framleiddum og blönduðum aðferðum til að fjarlægja kolefni. Þannig má jafna hluta af losuninni til frambúðar á sama tíma og kostnaði er haldið í lágmarki.

Gerðu jöfnunina varanlega

Kolefnisjöfnun sem er í ætlað að endast í mörg hundruð ár með samsettum lausnum náttúrulegra og framleiddra úrræða eins og lífkoli, lífrænni olíu, bláu kolefni og aukinni veðrun.




Öryggi, einfaldleiki og sjálfbærni

Með sjálfbærnistefnu, markmiðum og aðgerðum okkar erum við staðráðin í að nýta starfsemi okkar til að hafa jákvæð áhrif á heiminn. Skýr sjálfbærnisstefna, markmið og aðgerðir gera okkur kleift að lágmarka áhættu tengda sjálfbærni og leita að hugsanlegum tækifærum – til að þjóna viðskiptavinum okkar betur, forðast óþarfa kostnað og viðhalda góðum rekstrargrundvelli.

Við leitum leiða til að gera sjálfbærni að ófrávíkjanlegum hluta PLAY:

  • Með áherslu á loftslagsaðgerðir, hringrás sem og velferð starfsmanna okkar og viðskiptavina.
  • Að vera fyrirtæki með trausta framtíðarsýn og ábyrga viðskiptahætti mun gera okkur kleift að reka verðugt og sjálfbært fyrirtæki.
  • PLAY gerir fólki kleift að ferðast og uppgötva heiminn á ábyrgan hátt svo við megum öll halda áfram að upplifa það sem heimurinn hefur upp á að bjóða um ókomna tíð.
  • Við vekjum athygli á sjálfbærni og erum staðráðin í að nýta starfsemi okkar til að hafa jákvæð áhrif á hagsmunaaðila okkar.




Sjálfbærnistefnan okkar

PLAY gerir fólki kleift að ferðast og skoða heiminn á ábyrgan hátt svo við getum öll haldið áfram að njóta þess sem heimurinn hefur upp á að bjóða. Við gerum sjálfbærni hátt undir höfði og erum staðráðin í að nýta starfsemi okkar til að hafa jákvæð áhrif á okkar haghafa.

 

Leikgleði, einfaldleiki og agi eru lykillinn að því að viðhalda sjálfbærnistefnu PLAY í allri okkar starfsemi.




Loftslagsmál

Sparneytnari flug

Áherslur okkar til að lágmarka loftslagsáhrif

  • Sparneytinn flugvélafloti
  • Vegferð að kolefnishlutlausri starfsemi
  • Markmið um að draga enn frekar úr eldsneytisnotkun

Velferð

Heilsa og öryggi

Við hugum að velferð allra okkar haghafa

  • Stuðningsríkt og skemmtilegt vinnuumhverfi
  • Þægilegir einkennisbúningar og viðeigandi skófatnaður
  • Virðing fyrir og viðbúnaður við áhrifunum sem heimsfaraldur hefur á andlega og líkamlega heilsu

Framtíðarsýn

Mannauðurinn okkar

Við leitumst við að:

  • Veita starfsfólki okkar frábært starfsumhverfi og eftirsóknarverða vinnustaðamenningu til að laða að og halda í hæfasta fólkið
  • Veita jöfn tækifæri og fagna fjölbreytileikanum ásamt því að þiggja hugmyndir, þekkingu og sjónarmið allra sem starfa hjá PLAY
  • Undirbúa starfsfólk okkar til að aðlagast og bregðast við breytingum í flugiðnaði

Hringrásarhugsun

Minnkum sóun, endurnýtum og endurvinnum

  • Við notum sérstök úrræði til að draga úr heildarúrgangi
  • Við hagræðum innkaupum til að draga úr óþarfa umbúðum
  • Við forðumst einnota plast eftir því sem reglugerðir leyfa
  • Við erum í samstarfi við viðeigandi samstarfsaðila við að þróa hringrásarkerfi sem uppfyllir strangar reglur í flugiðnaði

Ábyrg viðskipti

Okkar áhrif

Til að ná árangri sem ábyrgt fyrirtæki:

  • Byggjum við upp rekstrasambönd við fyrirtæki og félagasamtök sem deila okkar gildum
  • Nýtum við hvert tækifæri til að vekja athygli á sjálfbærnisjónarmiðum meðal viðskiptavina okkar sem og annarra
  • Miðlum við aðgerðum okkar og viðleitni til okkar haghafa


Sjálfbærniskýrsla

Á hverju ári munum við greina frá áherslum okkar í sjálfbærnimálum og aðgerðum í ársskýrslunni okkar. Árið 2022 fengum við viðurkenningu fyrir Sjálfbærniskýrslu ársinsHlekkur opnast í nýjum flipa og erum við afar stolt af fyrstu sjálfbærniskýrslunni okkar fyrir árið 2021. Viðurkenningin er veitt af Festu – miðstöð um samfélagsábyrgð, Viðskiptaráði Íslands og Stjórnvísi.

Kíktu á sjálfbærniskýrslurnar okkar til að lesa meira um áherslur okkar í sjálfbærnimálum: