Skoða efni
23. Aug 2022

PLAY til Dulles Washington árið 2023

PLAY hefur hafið miðasölu á flugi til flugvallarins Dulles Washington (Dulles International

Airport) í Bandaríkjunum. Fyrsta flug PLAY til Dulles Washington verður 26. apríl 2023. Flogið verður alla daga vikunnar. Þetta er fjórði áfangastaður PLAY í Bandaríkjunum en hinir þrír eru Boston, Baltimore/Washington D.C. og New York.

PLAY hóf að fljúga til Baltimore/Washington flugvallar í apríl á þessu ári og vegna mikillar eftirspurnar, sérstaklega meðal tengifarþega, var ákveðið að styrkja stöðu PLAY á svæðinu og bæta þessum nýja áfangastað við leiðakerfið.