Skoða efni
19. Oct 2022

PLAY til Aþenu

Flugfélagið PLAY hefur hafið miðasölu á áætlunarferðum til Aþenu (Athens International Airport), höfuðborgar Grikklands. Fyrsta ferðin verður farin 2. júní 2023 en flogið verður tvisvar í viku, á mánudögum og föstudögum, út október 2023. Þetta verður í fyrsta sinn sem flugfélag er með beint áætlunarflug á milli Íslands og Aþenu.

Aþena er gjarnan kölluð vagga vestrænnar menningar. Borgin mun uppfylla þarfir allra sem þyrstir í sól og sumaryl, en jafnframt þeirra sem vilja kynnast sögu þessarar merku borgar. Aþena er skemmtileg og lifandi borg með þægilegum gönguleiðum um sögulegar minjar. Borgin státar einnig af stórfenglegri matarmenningu þar sem mætast ferskt hráefni og heilsusamleg matargerð Miðjarðarhafsins.

Í þægilegri fjarlægð frá Aþenu eru margar af helstu paradísareyjum Grikklands sem marga dreymir um að heimsækja. Frá flugvellinum í Aþenu er til dæmis hægt að fljúga til og frá Santorini, Mykonos, Krítar og Ródos.

Aþena er nýjasta viðbótin við stækkandi leiðakerfi PLAY en fyrir skemmstu hófst miðasala á ferðum til Porto í Portúgal. Flugfélagið býður nú áætlunarferðir til 27 áfangastaða beggja vegna Atlantshafsins.

„Ég er virkilega spenntur fyrir þessum nýja áfangastað og trúi því að margir séu sammála mér. Nú geta Íslendingar farið í beint flug til Aþenu í fyrsta sinn og þá Aþenubúar sömuleiðis til Íslands. Þá er ég viss um að það séu stór tækifæri í tengifluginu og að Bandaríkjamenn muni nýta sér þessa nýju leið PLAY yfir Atlantshafið til Aþenu og öfugt,” segir Birgir Jónsson, forstjóri PLAY.