Skoða efni
4. May 2023

PLAY flýgur til tveggja draumastaða næsta vetur

Flugfélagið PLAY hefur hafið sölu á áætlunarferðum til Verona á Ítalíu og Fuerteventura á Kanaríeyjum.  

Fyrsta flugið til Verona verður 20. janúar árið 2024 en flogið verður einu sinni í viku á laugardögum til 24. febrúar.  

Fyrsta flugið til Fuerteventura verður 20. desember næstkomandi en áætlunin mun ná fram yfir páska 2024, eða til 10. apríl.  

Fuerteventura er sannkölluð paradísareyja en hún er líklega frægust fyrir æðislegar öldur, gullfallegar strendur og fullkomnar aðstæður fyrir brimbrettafólk. Þá þykir loftslag eyjunnar tilvalið fyrir alls kyns útivist og íþróttir en hér má sannarlega njóta lífsins við hjólreiðar, göngu og golf svo fátt eitt sé nefnt.  

Áttundi áfangastaðurinn á Spáni

Verona er að sjálfsögðu þekktust fyrir rómantískustu svalir bókmenntasögunnar en hún státar einnig af stórfenglegri borgarfegurð. Frá borginni er stutt að fara í úrval vinsælla og frægra skíðasvæða í Ölpunum þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt skíðafæri.  

 Fuerteventura er áttundi áfangastaður PLAY á Spáni en fyrir flýgur PLAY til Alicante, Barcelona, Las Palmas, Madríd, Malaga, Mallorca og Tenerife. PLAY flýgur einnig til Porto og Lissabon í Portúgal. Verona er þriðji áfangastaður PLAY á Ítalíu en félagið er einnig með áætlunarferðir til Bologna og Feneyja.  

„Skíða- og sólarlandaferðirnar okkar að vetri til hafa lagst virkilega vel í Íslendinga. Það er frábært að geta stuðlað að lækkuðu verði með því að veita fólki úrval af möguleikum til að komast í sitt draumafrí og þessir tveir nýju áfangastaðir í leiðakerfinu munu svo sannarlega gefa tækifæri til þess,“ segir Birgir Jónsson, forstjóri PLAY.