Skoða efni
16. May 2021

PLAY fær flugrekstrarleyfi frá Samgöngustofu

  • Fyrsta flugvélin, TF-AEW, afhent í Houston Texas í Bandaríkjunum, af gerðinni A321NEO, árgerð 2018
  • Náið samstarf við stærsta flugvélaleigusala heims, AerCap, tryggir hagstæð kjör á þremur systurvélum

„Undanfarnar vikur hefur flugvirki á vegum PLAY verið í Houston til að undirbúa vélina til afhendingar fyrir okkur en í vikunni bættust í hópinn fleiri flugvirkjar, áhöfn og fulltrúar Samgöngustofu til að taka vélina út fyrir íslenska skráningu sem lauk svo seint í gærkvöldi, á íslenskum tíma, með flugrekstrarleyfi frá Samgöngustofu en Arnar Már Magnússon, einn stofnenda PLAY og framkvæmdastjóri flugrekstrarsviðs, hefur haft veg og vanda að ferlinu undanfarna mánuði,“ segir Birgir Jónsson forstjóri PLAY.

Við flugvélinni tóku Andri Geir Eyjólfsson forstöðumaður tæknideildar, Halldór Guðfinnsson og Friðrik Ottesen flugstjórar en undirbúningur að fyrsta flugi PLAY, á nýju flugrekstrarleyfi félagsins er í fullum gangi. TF-AEW fer nú í skýli þar sem hún verður máluð í einkennislitum PLAY. Að því loknu kemur vélin heim til Íslands og er þá tilbúin að hefja sig til flugs með farþega PLAY á fyrstu áfangastaði félagsins.

TF-AEW er fyrst þriggja systurvéla sem PLAY hefur tryggt sér frá AerCap, stærsta flugvélaleigusala í heimi. Vélar tvö og þrjú eru í innleiðingu og skráningu eins og stendur og koma einnig til landsins á næstu vikum samhliða stækkun leiðakerfis PLAY.

Hagkvæm flug og góður andi

Birgir segir að það sé stjórnendum og stjórn PLAY mjög ofarlega í huga á þessum tímamótum að þakka frábæru starfsfólki sem hefur undanfarin tvö ár staðið þétt saman í þessu stóra verkefni. „Hér er ótrúlegur andi. Við erum með frábært starfsfólk sem hefur unnið þrekvirki við fordæmalausar aðstæður þar sem unnið er af fagmennsku, gleði og virðingu. Fyrir tilvonandi viðskiptavini PLAY vil ég segja þetta, það er mikil tilhlökkun hjá okkur öllum að taka á móti ykkur um borð í nýlegar og hagkvæmar flugvélar okkar. Við ætlum að bjóða samkeppnishæf verð og einfalt ferðalag en þannig verðum við nauðsynleg viðbót við íslenskan flugmarkað“ segir Birgir.