Skoða efni
5. Jan 2023

PLAY breiðir verulega úr sér í Danmörku og tryggir lykilborg í Þýskalandi

PLAY færir áfram út kvíarnar og hefur nú bætt við fjórum áfangastöðum. Þar er um að ræða dönsku borgirnar Álaborg, Árósa og Billund. Í Þýskalandi bætist við hin mikla viðskiptamiðstöð Düsseldorf. Nýju áfangastaðirnir falla allir vel að tengiflugsleiðakerfi PLAY til áfangastaða í Norður-Ameríku sem eru New York, Boston, Washington og Baltimore.

 

Fyrsta ferð PLAY til Düsseldorf verður farin 8. júní næstkomandi en flogið verður þrisvar í viku. Düsseldorf, sögufræg stórborg í vesturhluta Þýskalands, býður í dag upp á einstaka listasenu, fjölbreytt menningarlíf og glæsilegar verslanir. Borgin er lýsandi fyrir Þýskaland nútímans en er þó um margt frábrugðin hinum tveimur áfangastöðum PLAY í Þýskalandi, Berlín og Hamborg. Flugvöllurinn í Düsseldorf er helsti alþjóðaflugvöllur gífurlegs fjölda Þjóðverja og um leið er þar mikil alþjóðleg umferð vegna viðskiptaumsvifa.

 

Í Danmörku er félagið sannarlega að breiða úr starfseminni.

 

Jómfrúarferðin til Álaborgar er farin þann 10. júní næstkomandi. Flogið verður tvisvar í viku. Álaborg er sjarmerandi borg í norðurhluta Jótlands. Hún er fjórða stærsta borg Danmerkur og mjög vinsæll ferðamannastaður vegna sögu sinnar, fallegra garða og spennandi menningarlífs.

 

PLAY mun fljúga fyrsta áætlunarflugið sitt til Árósa þann 12. júní en flogið verður tvisvar í viku. Árósar, staðsett á austurströnd Jótlands, er önnur stærsta borg Danmerkur. Árósar er vinsæll ferðamannastaður og lifandi menningarborg, enda státar hún af gullfallegum ströndum, sjarmerandi miðbæ og fjölda listasafna og gallería.

 

Þá mun PLAY hefja flug til Billund í Danmörku þann 15. júní. Flogið verður tvisvar í viku. Helsta aðdráttarafl Billund er klárlega Lególand, skemmtigarður með fleiri en 50 tækjum, sýningum og skemmtiatriðum.

 

„Okkur hefur lengi dreymt um að gera betur við þann mikla fjölda Íslendinga sem býr í Danmörku og með þremur nýjum áfangastöðum í landinu teljum við að þjónustan verði stórbætt. Það er mikið gleðiefni. Með þessari viðbót við leiðakerfið verður PLAY með sex áfangastaði í Skandinavíu næsta sumar, tvo í Svíþjóð og fjóra í Danmörku. Þessir þrír nýju áfangastaðir í Danmörku eru virkilega spennandi - ekki aðeins er ég sannfærður um að Íslendingar muni nýta sér þá í miklum mæli, heldur einnig þeir sem vilja komast frá Vestur-Danmörku og til Bandaríkjanna á þægilegan og ódýran hátt. Um leið hefur sjaldan verið ódýrara fyrir Íslendinga að skreppa til Danmerkur að njóta danska sumarsins eða heimsækja ættingja - helmingur Íslendinga í Danmörku býr í vesturhluta landsins. Þetta eru einfaldlega frábærar fréttir fyrir stóran hóp fólks,” segir Birgir Jónsson, forstjóri PLAY.