Skoða efni
23. Sep 2021

PLAY bætir við Amsterdam í vetraráætlun

Flugfélagið PLAY hefur bætt Amsterdam í Hollandi við vetraráætlun sína. Flogið verður tvisvar í viku, á mánudögum og föstudögum, frá og með 3. desember. Með þessu er PLAY að bregðast við aukinni eftirspurn á flugi til og frá Íslandi samhliða batnandi stöðu kórónuveirufaraldursins. Félagið hefur fengið lendingarleyfi á Schiphol flugvelli og hefst miðasala í dag.

Þriðji stærsti flugvöllur í Evrópu

„Sala flugmiða hefur tekið kipp síðustu vikur og við finnum greinilega að fólk er tilbúið að ferðast. Við teljum því tímabært að útvíkka leiðarkerfi okkar í Evrópu og bjóða viðskiptavinum upp á lág fargjöld til Amsterdam. Við eigum ekki von á öðru en að þessum nýja áfangastað okkar verði tekið mjög vel af Íslendingum sem og Hollendingum sem vilja ferðast til Íslands,“ segir Birgir Jónsson forstjóri PLAY.

Schiphol er þriðji stærsti flugvöllur í Evrópu og býður upp á fjölda af tengingum fyrir farþega PLAY.