Skoða efni
2. Dec 2021

PLAY bætir Dyflinn, Madríd og Brussel við leiðakerfið

Flugfélagið PLAY hefur bætt þremur áfangastöðum í Evrópu við áætlun sína, Dyflinn á Írlandi, Madríd á Spáni og Brussel í Belgíu.

Flogið verður þrisvar sinnum í viku til Dyflinnar en ferðir til borgarinnar hefjast í lok apríl 2022. PLAY mun fljúga þrisvar sinnum í viku til Brussel og hefst flug þangað í maí. Áætlunarflug til Madríd hest í júní en flogið verður tvisvar í viku.

Með þessari viðbót við leiðakerfi PLAY eru áfangastaðir félagsins í Evrópu orðnir 23 talsins. Auk Dyflinnar, Madrídar og Brussel bættust nýlega við leiðakerfi PLAY Lissabon í Portúgal, Bologna á Ítalíu, Stuttgart í Þýskalandi og Prag í Tékklandi. Þá mun PLAY hefja áætlunarflug til austurstrandar Bandaríkjanna næsta vor og eru Dyflinn og Brussel lykilborgir þegar kemur að því að flytja flugfarþega yfir Atlantshafið.

Dyflinn þekkja Íslendingar vel. Borgin er vinsæll áfangastaður fyrir þá sem vilja gera góð kaup enda er verðlag þar í mörgum tilvikum lægra en til dæmis í London eða Kaupmannahöfn. Þá er Ísland afar vinsæll áfangastaður á meðal Íra sem vilja heimsækja frændur sína í norðri.

Flugvöllurinn í Madríd er sá stærsti á Spáni og sjöundi flugvöllurinn sem PLAY flýgur til í þessu sólríka landi. Fyrir flýgur PLAY til Barcelona, Tenerife, Kanaríeyja og Alicante en Mallorca og Malaga bætast við næsta sumar.

Brussel er höfuðborg Belgíu og sú fjölmennasta en þar búa 1,2 milljónir manna. Borgin er miðstöð fjölmargra alþjóðastofnanna á borð við Evrópusambandið og NorðurAtlantshafsbandalagið.

„Það er virkilega ánægjulegt að bæta við enn fleiri áfangastöðum í Evrópu sem styrkja leiðakerfið okkar til muna. Þetta eru frábærar borgir sem hafa í gegnum tíðina notið mikilla vinsælda meðal Íslendinga og það er gaman að geta boðið lægsta verðið til þessara þriggja borga eins og til annarra áfangastaða okkar. Þá eru þetta borgir sem eru mikilvægar fyrir farþegaflutninga yfir Atlantshafið,“ segir Birgir Jónsson, forstjóri PLAY.