Skoða efni
28. Sep 2021

PLAY auglýsir eftir hundrað flugliðum

PLAY leitar nú að um hundrað flugliðum til starfa fyrir næsta vor, bæði í framtíðar- og sumarstörf. Jafnframt stendur til að auglýsa eftir um fimmtíu flugmönnum í næstu viku. Um er að ræða stærstu ráðningu félagsins í einu vetfangi en með þessu tvöfaldast fjöldi starfsmanna PLAY.

Nú þegar starfa fimmtíu flugliðar hjá félaginu en ráðningarnar eru í takt við enn frekari umsvif PLAY sem mun taka þrjár nýjar flugvélar í notkun næsta vor. Félagið er nú þegar með þrjár vélar í rekstri. Þá er áformað að bæta við fjórum vélum árið 2023 og verða þá enn fleiri ráðnir til starfa.

Rétti tíminn til að manna vélarnar fyrir næsta sumar

PLAY mun bæði ráða flugliða með og án reynslu. Áhafnir PLAY hafa vakið verðskuldaða athygli á áfangastöðum félagsins með látlausum og þægilegum einkennisklæðnaði sem sendir skýr skilaboð um þægilega þjónustu PLAY og andann á vinnustaðnum þar sem leikgleðin er í fyrirrúmi.

„Áætlanir PLAY hafa verið varfærnar við ríkjandi aðstæður en skýr hraustleikamerki í ferðaþjónustunni auk breytinga á sóttvarnarráðstöfunum gera það að verkum að nú er tímabært að fara að manna vélarnar fyrir næsta sumar. Ég er vægast sagt spenntur að fá nýtt fólk í liðið okkar og við erum stolt af því að við séum að skapa öll þessi nýju störf. Það eru ekkert nema spennandi tímar fram undan og það verður ekki bara spennandi heldur líka gaman að starfa hjá okkur,“ segir Birgir Jónsson, forstjóri PLAY.