Skoða efni
11. Oct 2022

Ólafur Þór ráðinn framkvæmdastjóri fjármálasviðs PLAY

Ólafur Þór Jóhannesson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fjármálasviðs PLAY. Hann tekur við starfinu af Þóru Eggertsdóttur og hefur störf í byrjun nóvember.

Ólafur Þór gegndi starfi forstjóra, aðstoðarforstjóra og framkvæmdastjóra fjármálasviðs Skeljungs hf. á árunum 2019-2022. Þar áður gegndi hann ýmsum stjórnunarstöðum í atvinnulífinu, hefur verið sjálfstætt starfandi ráðgjafi, sinnt stjórnarsetu í nokkrum félögum og þá var hann endurskoðandi og meðeigandi hjá PricewaterhouseCoopers. Ólafur Þór er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og hefur sinnt kennslu við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík.

Ólafur Þór: „Ég er þakklátur fyrir það tækifæri að fá að vera þátttakandi í áframhaldandi uppbyggingu PLAY sem er að mínu mati á mjög áhugaverðum stað. Ég hlakka til að fá að takast á við þau fjölmörgu verkefni sem eru framundan og vonast til þess að reynsla mín og þekking úr ólíkum atvinnugreinum komi félaginu að gagni.“

Birgir Jónsson, forstjóri PLAY: „Það er okkur einstök ánægja að kynna Ólaf Þór til leiks enda mikill fengur að honum fyrir félagið. Hann býr yfir gífurlegri reynslu úr fjölbreyttum áttum og er góð viðbót við sterkan stjórnendahóp PLAY. Nú þegar hann tekur við okkar sterka fjármálateymi getum við stigið ákveðnum skrefum fram á við og haldið áfram að hækka flugið. Ég býð Ólaf Þór hjartanlega velkominn um borð.“