Skoða efni

Hafðu samband

Þjónustan okkar er alfarið rafræn og fyrir vikið er biðin styttri og samskiptin auðveldari, fljótlegri og þægilegri!

Þú getur sent okkur línu á eftirfarandi samfélagsmiðlum:

Whatsapp skilaboð í gegnum númerið +354 860-4500 (Athugið einungis fyrir skrifleg samskipti, ekki hægt að hringja)

Samfélagsmiðlasíðurnar okkar eru vottaðar! Leitaðu að vottuðum aðgangi okkar áður en þú hefur samband á samfélagsmiðlum.

Á vefsíðunni okkar má fylla út þjónustubeiðni.

Hjálpsamt starfsfólk okkar er til þjónustu reiðubúið alla virka daga milli kl. 05:00-20:00 og um helgar 08:00-20:00.

Starfsfólkið okkar talar bæði íslensku og ensku.

Playfin

Playfin er spjallmenni PLAY

Hann er sérstakur þjónustulundi enda þjónustulundin uppmáluð. Playfin er flugklár og veit allt um bókanir, farangur, flugáætlun, aukaþjónustu og nánast allt sem viðkemur starfsemi PLAY.

Hann hefur þann einstaka kost að sofa aldrei og fara aldrei í mat þannig að hann er bókstaflega ávallt til þjónustu reiðubúinn. Playfin er stöðugt að læra og bæta sig en þar til hann nær fullu valdi á öllu sem viðkemur mannlegu viðmóti er hann fljótur að gefa fólki samband við manneskju ef hann verður ráðþrota eða koma skilaboðum áleiðis.

Þú getur talað við hann með því að smella á myndina af honum hér niðri í hægra horninu. Láttu vaða, hann bíður spenntur!

Hópar

Ef að þú vilt bóka flug fyrir 12 eða fleiri fullorðna farþega í sömu bókun hafðu endilega samband við okkur til að fá tilboð fyrir hópinn. Hægt er að senda inn beiðnir fyrir hópa, +12 eða fleiri, í gegnum þjónustubeiðnir hér.

Sjá almennar upplýsingar um hópa hér.

Hópadeildin okkar er á vaktinni mánudaga til föstudaga frá 09:00 til 17:00 og mun svara eins fljótt og auðið er. Einnig er hægt að hafa samband í gegnum groups@flyplay.com.

Ferðaskrifstofur

Ferðaskrifstofum er bent á að hafa samband við agents@flyplay.com fyrir alla mögulega aðstoð.

Deildin er á vaktinni mánudaga til föstudaga frá 09:00 til 17:00 og mun svara eins fljótt og auðið er.

Bókað í gegnum þriðja aðila

Aðstoð við bókanir sem koma í gegnum þriðja aðila (t.d. OTA) er í boði frá 05:00 til 20:00 á virkum dögum og um helgar frá 08:00 til 20:00 í gegnum netfangið otasupport@flyplay.com.

GDPR gagnavernd

Vinsamlegast hafið samband við datarequest@flyplay.comHlekkur opnast í nýjum flipa vegna beiðna varðandi persónuupplýsingar sem geymdar eru hjá okkur og við munum verða við fyrirspurninni innan 30 daga.