Skoða efni
28. Mar 2022

Guðbergur til PLAY

Guðbergur Ólafsson hefur verið ráðinn sem forstöðumaður flugþjónustu hjá PLAY. Guðbergur mun bera ábyrgð á allri flugtengdri þjónustu, svo sem samskiptum við samstarfsaðila á flugvöllum sem félagið flýgur til.

Guðbergur hefur víðtæka reynslu af flugrekstri og kemur til PLAY frá Icelandair þar sem hann hefur starfað frá 2014, síðast sem stöðvarstjóri í Evrópu með aðsetur í Amsterdam. Þar áður starfaði Guðbergur sem sérfræðingur á rekstrarsviði WOW air og á undan því  ýmsum störfum hjá Iceland Express, meðal annars stöðu stöðvarstjóra í Keflavík og deildarstjórastöðu á rekstrarsviði félagsins. 

„Það er mikill fengur að fá Guðberg til liðs við okkur á flugrekstrarsviði PLAY enda er hann mjög reynslumikill í faginu. Fram undan eru mikilvæg verkefni þar sem reynsla Guðbergs mun reynast okkur dýrmæt. Við hlökkum til að fá hann til starfa,“ segir Arnar Már Magnússon, framkvæmdastjóri flugrekstrarsviðs PLAY.