Skoða efni
9. Aug 2021

Fyrsti mánuður PLAY á flugi gekk mjög vel

  • PLAY stundvísasta flugfélagið á Keflavíkurflugvelli í júlí 
  • Sætanýting var 41,7% 
  • Ný bylgja kórónuveirunnar hafði neikvæð áhrif á eftirspurn meðal Íslendinga í júlí en ekki erlendra farþega.

Árangur PLAY í júlí, fyrsta mánuðinum í fullum rekstri félagsins, var mjög góður miðað við stöðuna á markaði og það að félagið er rétt að hefja starfsemi sína. Stærsta markmið PLAY var að hefja flugrekstur sinn með faglegum hætti, veita örugga og góða þjónustu og tryggja ánægju viðskiptavina sinna. Til marks um góðan árangur var PLAY stundvísasta flugfélagið á Keflavíkurflugvelli í júlí með 96,2% flugferða á réttum tíma.

Þá fékk PLAY þrjár A321 neo flugvélar í sumar sem eru allar komnar í notkun og byrjaðar að fljúga til þeirra sjö áfangastaða sem félagið hefur hafið flug til. Flugvélarnar koma inn í framleiðslu félagsins í takt við eftirspurn á markaði og eftir því sem flugáætlun félagsins þéttist. Hér nýtur félagið sveigjanlegra leigukjara sem gefur því kost á að stýra framboði sínu og um leið kostnaði félagsins með hagkvæmum hætti. Félagið er þannig vel í stakk búið til að takast á við þau áhrif sem heimsfaraldur kórónuveirunnar hefur í för með sér á næstu mánuðum.  

PLAY flutti 9.899 farþega í júlí. Sætanýting félagsins var 41,7% sem er í takt við væntingar félagsins þennan fyrsta mánuð í fullum rekstri. Hvað varðar sumarleyfisstaði sem PLAY flýgur til má segja að eftirspurn hafi verið vel umfram væntingar.  

Kórónuveirufaraldurinn hafði óneitanlega áhrif á starfsemina í júlí eins og fyrirséð var, enda hóf PLAY starfsemi í miðjum heimsfaraldri og áætlanir félagsins gera ekki ráð fyrir öðru en að eftirspurn sveiflist til með þróun faraldursins enda er það ástæða þess að félagið er að fara hægt og örugglega af stað í starfsemi sinni

Þróunin í júlí var jákvæð þar til ný bylgja kórónuveirunnar skall á hér á landi um miðjan mánuðinn. Íslenskir viðskiptavinir nýttu sér þá sveigjanlega COVID-19 skilmála PLAY og breyttu ferðadagsetningu sinni í mörgum tilfellum og hafði það neikvæð áhrif á sætanýtingu í mánuðinum. Hér er ekki um að ræða tekjutap fyrir félagið heldur tilfærslu á tekjum og sætanýtingu. Mun minna var um breytingar eða afbókanir meðal erlendra ferðamanna á leið til Íslands sem er markvert vegna þess að meirihluti þeirra farþega sem kaupa miða með PLAY eru erlendir ferðamenn eða farþegar sem hefja ferð sína utan Íslands. Nú þegar merkir PLAY aukin ferðavilja og bókanir frá innlendum viðskiptavinum og stjórnendur félagsins eru bjartsýnir á komandi mánuði.

„Markmið okkar er að byggja PLAY upp í öruggum og yfirveguðum skrefum og er góður árangur þessa fyrsta mánaðar í fullum rekstri traust og gott skref í þá átt. Við erum stolt af árangri okkar við erfiðar aðstæður og ég vil þakka starfsfólki okkar fyrir elju og dugnað og farþegum okkar fyrir að ferðast með PLAY,“ segir Birgir Jónsson, forstjóri PLAY.  

Hér Hlekkur opnast í nýjum flipaHlekkur opnast í nýjum flipa má sjá mánaðarlegar flutningstölur fyrir júlímánuð sem PLAY birti í Kauphöll í morgun.