Skoða efni
31. Mar 2022

Farþegar PLAY geta nú kolefnisjafnað flug sitt

Viðskiptavinir PLAY geta nú kolefnisjafnað flug sitt með lausnum sem fjarlægja kolefni úr andrúmsloftinu. Þetta er einn liður í sjálfbærni vegferð PLAY.

Viðskiptavinir geta valið á milli lausna til að kolefnisjafna á borð við þörungaræktun sem bindur CO2 úr andrúmsloftinu, framleiðslu á Líf-olíu og skógrækt. Lausnirnar hafa mis mikil áhrif hvað samfélagsleg áhrif og loftslags ávinning varðar. Með því að bjóða upp á mismunandi leiðir vill PLAY koma til móts við breiðan hóp viðskiptavina sem gera ólíkar kröfur og hafa mis mikið svigrúm við að kolefnisjafna flugið sitt.

 „Það er ekkert leyndarmál að flugi fylgir talsverður útblástur og þess vegna höfum við lagt mikla áherslu á að gera sjálfbærni vegferð okkar gagnsæja, mælanlega og trúverðuga. Ég er sannfærð um að viðskiptavinir muni fagna því að geta loks kolefnisjafnað flug sitt. Við val á samstarfsaðila vorum við með skýrar kröfur um að geta boðið upp á lausnir sem kolefnisjafna með trúverðugum og ábyrgum hætti og hafa raunverulegan loftslags ávinninga í för með sér. Klimaet, danskt nýsköpunarfyrirtæki, varð fyrir valinu enda uppfyllir fyrirtækið ofangreindar kröfur. Þetta er aðeins eitt af okkar fyrstu skrefum á okkar sjálfbærni vegferð en við erum bara rétt að byrja,“ segir Rakel Eva Sævarsdóttir, forstöðumaður Sjálfbærni hjá PLAY.

Nánari upplýsingar um sjálfbærniáherslur PLAY og hvernig farþegar geta kolefnisjafnað flugið sitt er að finna hér: https://klimate.co/play-removal/Hlekkur opnast í nýjum flipa