Fljúgðu í bestu brekkurnar
Skíðaáfangastaðirnir okkar eru hver öðrum ævintýralegri en hver með sinn einstaka sjarma. Frá heimsfrægum skíðasvæðum í Verona í ítölsku Ölpunum til stórbrotinnar fjallasýnar í Genf og Pýreneafjalla í akstursfjarlægð frá Barcelona. Við erum að tala um brekkur fyrir alla getuhópa, metnaðarfulla skíðaskóla, glæsilega aðstöðu, spennandi brettagarða, framúrskarandi aprés-ski og gullfallegt umhverfi.
Þetta er rétti tíminn til að gramsa í geymslunni, bera á skíðin og bóka flugið því þú munt bruna niður brekkurnar í sannkallaðri skíðaparadís í vetur. Það borgar sig að bóka skíðaflugið tímanlega.
Ítalska borgin Verona er mögulega frægust fyrir rómantískustu svalir í heimi en það er miklu meira að sjá, skoða og upplifa í þessari heillandi borg en bara sögusvið Rómeó og Júlíu. Verona er frábær áfangastaður fyrir hagkvæma og ógleymanlega vetrarferð enda stutt að fara í fyrsta flokks skíðasvæði í stórbrotnu landslagi.
Fyrir þá sem fíla fjallgöngur og skíðaíþróttir komast fáir áfangastaðir með tærnar þar sem Genf hefur hælana en héðan er frábært aðgengi að einhverjum bestu skíðasvæðum heims og stórfenglegu Alpaumhverfinu. Ber þar helst að nefna Champery í Sviss, Morzine í Frakklandi og Courmayeur á Ítalíu.
Lífið í Barcelona snýst ekki bara um sól og strendur því borgin er í akstursfjarlægð frá fjölmörgum frábærum skíðasvæðum í gullfallegum Pýreneafjöllum. Þessi vinsæli fjallgarður býður vetraríþróttafólk velkomið í dásamlegar aðstæður og óviðjafnanlegt útsýni á landamærum Frakklands og Spánar.