Skoða efni

Miðabókun 101

Áfanginn Miðabókun 101” gefur þér innsýn í ýmsa bókunartengda hluti, svo sem greiðslumöguleika, gjafabréf og hópabókanir.

Á endanum útskrifast þú sem bókunarmeistari!

Vistaðu upplýsingarnar - fljótari bókun!

Þú getur skoðað heimasíðuna okkar eins og þú vilt en þegar þú ætlar að bóka flug þarftu að stofna MyPLAY aðgang. Til að setja upp aðganginn verður þú að fylla inn fullt nafn, netfang og velja lykilorð.

Ekki örvænta! Þú þarft bara að stofna þennan aðgang einu sinni þar sem þú getur vistað allar upplýsingarnar þínar fyrir næstu bókanir með PLAY.

Aðgangurinn veitir þér síðan allar þær upplýsingar sem þú þarft fyrir flugið þitt. Þar getur þú meðal annars bætt við þjónustu, valið sæti, endursent bókunarstaðfestinguna þína og skoðað komandi flug. Þú getur einnig innritað þig í flugið þitt 24 tímum fyrir brottför í gegnum MyPLAY. Þetta gæti ekki verið einfaldara.

Þú getur bæði vistað þínar eigin persónuupplýsingar og farþegaupplýsingar ferðafélaga þinna. Þá þarftu ekki alltaf að rifja upp kennitölu makans þegar þú bókar flug.

Vistaðu svo greiðsluupplýsingar til að vera fljótari að ganga frá bókun næst. Þú getur meira að segja vistað mörg kreditkort og valið hvert þeirra þú vilt nota þegar þú bókar. Það er mikið þægilegra.

Smelltu hér til að bóka miða!

Greiðslumöguleikar

Við tökum við kreditkortum (VISA og MasterCard) og debetkortum með 16 tölustöfum og CSC / CVC kóða.

Við tökum ekki við greiðslum fyrir bókunum eða aukaþjónustu með reiðufé.

Annar aðili getur greitt með sínu greiðslukorti fyrir flugið þitt. Ekki þarf að framvísa kortinu við innritun.

Athugið að öll aukaþjónusta verður gjaldfærð af því greiðslukorti nema nýju korti sé bætt við pöntunina eftir bókun.

Forfallavernd

Við mælum með því að farþegar kaupi forfallavernd þar sem PLAY endurgreiðir ekki flugmiða nema forfallavernd hafi verið keypt við upphaflega bókun.

Þegar þú kaupir forfallavernd er miðinn þinn verndaður fyrir ófyrirséðum aðstæðum eins og skyndilegum veikindum eða andláti ástvinar.

Þú getur keypt forfallavernd þegar þú bókar flugið þitt en hana er einungis hægt að kaupa fyrir alla flugleggi ferðarinnar.

Frekari upplýsingar um forfallavernd má nálgast hér.

Vinsamlegast athugið að röskun á ferðalagi vegna skorts á gildum skilríkjum, vegabréfsáritun eða öðrum ferðaheimildum fellur ekki undir forfallaverndina.

Gjafabréf

Gefðu leikglaða ævintýragjöf með gjafabréfi PLAY. Gjafabréfin okkar gilda í fjögur ár, eru sáraeinföld í notkun og munu án efa gleðja viðtakendur með glænýjum minningum á framandi slóðum. Nánari upplýsingar um gjafabréfin má finna hérHlekkur opnast í nýjum flipa.

Hópabókun

Ef þú vilt bóka fyrir 12 eða fleiri farþega í sömu bókun endilega hafðu samband við okkur til að fá tilboð fyrir þinn hóp.

Til að gera beiðni um hópabókun er einfaldlega smellt hér til að fylla út þjónustubeiðni um hópabókun.

Vinsamlegast athugið að þjónustubeiðnirnar okkar eru enn sem komið er aðeins á ensku en engar áhyggjur, þú getur alltaf sent okkur tölvupóst á íslensku á flyplay@flyplay.com og við hjálpum þér að klára beiðnina.

Á síðunni er eftirfarandi valið: "I need an offer for my group of +12 passengers".

Þar þurfum við eftirfarandi upplýsingar frá þér:

  • Tengiliður bókunar - nafn og netfang
  • Brottfararstaður & komustaður
  • Brottfarardagsetning & heimkomudagsetning
  • Fjöldi fullorðinna, barna og ungabarna í bókun
  • Hvort að við ættum að taka með í tilboðsverðið innritaðan farangur
  • Hvort að farþegar vilji kaupa forfallavernd

Eftir að við höfum móttekið beiðnina munum við senda formlegt tilboð innan tveggja virkra daga frá því að fyrirspurn berst. Við þurfum staðfestingu á því hvort að tilboðið sé samþykkt innan tveggja virkra daga.

Ef tilboðið er samþykkt, munum við setja upp bókunina og láta tengilið vita varðandi næstu skref, hvernig greiðslu er háttað, hvenær við þurfum nafnalista, o.s.frv.

Athugið að ef beiðni um tilboð í hóp berst innan við sex vikum fyrir flugið sem á að bóka þá þarf að greiða alla bókunina í einu.