Skoða efni

Besta verðið á flugi

Sólarlandaferðir, skíðaferðir, helgarferðir, borgarferðir og allt þar á milli. Skoðaðu alls kyns útgáfur af leiðakerfinu okkar með verði hér og finndu flugið sem þér hentar á besta verðinu.

Besta verðið okkar til Bandaríkjanna

Áfangastaðir okkar í Bandaríkjunum eru litríkar, spennandi stórborgir þar sem ferðalangar geta gleymt sér vikum saman við að uppgötva nýja heima á hverju götuhorni. Röltu um Central Park með góðan kaffibolla, kíktu á söfnin í Washington DC, sjáðu sögu Bandaríkjanna með eigin augum í Boston eða upplifðu alvöru amerískan sjarma í Baltimore. Þú finnur flug til Bandaríkjanna á frábæru verði hér.

Besta verðið okkar til Kanada

Kanada er oft kallað vinalegasta land í heimi og Toronto er þar engin undantekning. Þessi litríka heimsborg býður gestum sínum upp á botnlaust úrval af magnaðri matarmenningu og óteljandi afþreyingu í spennandi og skemmtilegu umhverfi. Skoðaðu besta verðið okkar til Kanada og njóttu lífsins í Toronto.

Besta verðið okkar til Bretlands

Nágrannar okkar á Bretlandseyjum eru höfðingjar heim að sækja og það sakar ekki að flugið gerist ekki styttra! Kíktu á leikinn í Liverpool, á krána í Glasgow eða finndu allt sem hugurinn girnist á sjarmerandi strætum heimsborgarinnar London. Skoðaðu besta verðið okkar á flugi til Bretlands hér.

Síðustu sætin

Ertu að leita að flugi á frábæru verði á næstu dögum eða vikum? Stundum eru skemmtilegustu minningarnar hressandi óvissuferð á síðustu stundu. Skoðaðu síðustu sætin okkar og finndu þér ódýrt flug á næstunni til spennandi áfangastaða okkar í Evrópu, Kanada eða Bandaríkjunum!



Tilboð

Sástu auglýsingu um flug á frábæru verði og vilt vita meira? Kíktu á skilmálasíðuna okkar hér og gríptu næsta flug á betra verði.