Skoða efni
7. Jun 2023

Aldrei fleiri flogið með PLAY í einum mánuði og 85% sætanýting í maí

Farþegar PLAY voru 128.894 talsins í maímánuði, sem er metfjöldi því aldrei hafa fleiri flogið með félaginu í einum mánuði. Farþegum fjölgaði um 26% á milli mánaða, en í apríl voru þeir 102.499 talsins. Sætanýtingin í maí nam 85% og 87,3% af flugferðum félagsins í maí voru á áætlun.  Þessi tölfræði telst mjög jákvæð, sérstaklega í ljósi þess að maí felur iðulega í sér nokkra áskorun fyrir flugfélög. Á meðan unnið er að því að skala upp starfsemina fyrir sumarvertíðina er eftirspurn alla jafna ekki tekin við sér að fullu. Sumarfrí eru til dæmis ekki hafin í maí að miklu marki.

Tölfræðin sýnir fram á verulegan vöxt frá því á sama tíma í fyrra, þegar PLAY flutti 56.601 farþega og sætanýtingin nam 69,6%. Hér er um að ræða tvöföldun á farþegafjölda í sama mánuði á milli ára.

Flogið var til 26 áfangastaða í maí, samanborið við sautján áfangastaði á sama tíma í fyrra. Sólarlandaáfangastaðir voru áfram mjög vinsælir og sá markverði árangur náðist í flugi til Lundúna, Kaupmannahafnar, Parísar, Boston og Berlínar, að sætanýting nam þar vel yfir 90 prósentum.

Farþegum á leið til Íslands með PLAY í maí mánuði fjölgaði á milli ára, sem er til marks um sterka markaðsstöðu og vaxandi traust í garð félagsins á erlendum mörkuðum. Af öllum farþegum sem flugu með PLAY í mánuðinum voru 27% á leið frá Íslandi, 25% á leið til landsins og 48% voru tengifarþegar. Sérstaklega sterk eftirspurn er eftir flugferðum frá Bandaríkjunum til Evrópu og eru verð á farmiðum umtalsvert hærri en í fyrra á þeim markaði.

28% aukning í hliðartekjum á hvern farþega á milli ára og jákvæðar horfur

Hliðartekjur félagsins héldu áfram að aukast í maí. Hliðartekjur að meðaltali á hvern farþega hafa aldrei verið meiri í einum mánuði, en meðaltal hliðartekna hefur vaxið um 28% frá því í maí í fyrra. Nokkrir þættir stuðla að þessari jákvæðu þróun, meðal annars umbætur á bókunarvef og áherslubreytingar í sölu- og dreifingarferlinu. Talið er að þessir þættir muni hafa enn jákvæðari áhrif á næstu mánuðum sem bendir til enn meiri tekjuvaxtar.

Annar ársfjórðungur fer vel af stað, afkoma aprílmánaðar var umfram væntingar stjórnenda félagsins og horfur til næstu mánaða eru góðar.  Í byrjun júní mætir félagið til leiks með heilbrigðan vöxt í meðaltekjum á farþega og stór bætta sætanýtingu, sem er fimmtán prósentustigum hærri en í júní í fyrra.

Birgir Jónsson, forstjóri PLAY:

„Maí var fínn mánuður fyrir PLAY og við kættumst mjög við að slá met okkar fyrir fjölda farþega í einum mánuði. Sætanýting upp á 85% sýnir síðan enn frekar fram á sterka stöðu okkar í maí, sem er yfirleitt flókinn mánuður enda eftirspurn yfirleitt ekki orðin ýkja sterk fyrir sumarið. Ofan á þessa góðu tölfræði bætist sá stóri áfangi að við höfum tekið við glænýrri A321neo flugvél, þannig að A320neo-floti okkar telur nú tíu vélar. Í dag státum við því af yngsta flugvélaflota nokkurs flugfélags í Evrópu. Sú staðreynd skapar þýðingarmikið forskot hjá félaginu; viðhaldskostnaður er mun lægri, olíunýting betri og þægindi viðskiptavina í vélunum eru mikil. Á síðustu vikum höfum við verið að taka við miklum fjölda nýrra starfsmanna og starfsliðið í heild telur nú um 550 metnaðarfulla og faglega einstaklinga sem eru spenntir að sýna heiminum hvað í okkur býr.

Það gleður okkur að geta sagt frá auknum hliðartekjum. Þær hafa aldrei verið hærri að meðaltali á hvern farþega í einum mánuði. Ef maí er borinn saman við sama mánuð árið 2022, erum við að tala um 28% aukningu. Þetta er tekjulind sem okkur láðist að fullnýta í fyrra af ýmsum ástæðum og það er því mikið ánægjuefni að sjá átak og fjárfestingu á þessu sviði skila svona góðum árangri.

Við erum býsna bjartsýn nú þegar við horfum fram á veginn. Annar ársfjórðungur lofar góðu og apríl fór fram úr væntingum okkar. Sterk eftirspurn sem við finnum vel fyrir og heilbrigður tekjuvöxtur eru bæði jákvæð teikn fyrir sumarvertíðina og árið allt. Tíu véla flotinn sem nú hefur allur verið tekinn í gagnið gerir okkur kleift að skala starfsemina á sem hagkvæmastan hátt. Í þeim mikla vaxtarfasa sem félagið hefur verið í undanfarin tvö ár hefur grunnkostnaður verið tiltölulega hár miðað við þær tekjur sem sex flugvélar geta aflað. Sá tími er nú að baki og með tíu flugvélum náum við náttúrulegra jafnvægi á milli kostnaðar og tekna.

Við kunnum vel að meta stuðning og traust farþega okkar í garð félagsins og við erum áfram staðráðin í  að veita þeim ávallt framúrskarandi þjónustu á frábæru verði. Mig langar að þakka öllu teyminu hjá PLAY fyrir magnað framlag þeirra.“