Skoða efni
2. Mar 2023

Adrian Keating bætist við lykilstjórnendahóp PLAY

Adrian Keating hefur verið ráðinn yfirmaður sölu- og markaðsmála (Executive Director Sales- and Marketing) hjá PLAY og bætist við lykilstjórendahóp félagsins. Hann hóf störf þann 1. mars. Adrian er með yfir 20 ára reynslu úr alþjóðlega fluggeiranum og hefur starfað fyrir þekktustu vörumerkin í geiranum við góðan orðstír. 

Adrian hóf feril sinn hjá British Airways árið 1999 en hefur síðan þá starfað hjá easy-Jet, Etihad, Malaysia Airlines og Air Transat. Síðast starfaði Adrian hjá norska flugfélaginu Norse Atlantic sem forstöðumaður sölu, markaðs- og dreifingarmála. Þar áður gegndi hann lykilstjórnendastöðum hjá Air Transat og Malaysia Airlines. Á undan því var Adrian sölustjóri hjá easy-Jet. 

 

„Að ganga til liðs við PLAY á sama tíma og félagið fagnar því að fljúga með milljónasta farþegann markar upphafið að spennandi kafla á ferlinum mínum. Ég er mjög upp með mér að hafa fengið tækifæri til að leiða öflugan hóp sölu- og markaðssviðs PLAY og hlakka til þess að leggja mitt af mörkum og verða partur af áframhaldandi vexti félagsins. Þá hlakka ég til þess að móta framtíðarsýn í sölu- og markaðsstarfi félagsins,“ segir Adrian Keating.  

„Adrian kemur til PLAY með yfir 20 ára reynslu úr alþjóðlega fluggeiranum og ég býð hann hjartanlega velkominn í frábæra teymið mitt. Alþjóðleg reynsla Adrian mun klárlega nýtast PLAY vel og þá sérstaklega við að kynna PLAY enn betur á erlendri grundu. Það er mikil eftirvænting fyrir komandi tímum hér hjá PLAY með þessum liðsauka,“ segir Sonja Arnórsdóttir, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs PLAY.