Skoða efni

Ferðast til Íslands

Allt sem þú þarft að vita fyrir ferðalag til Íslands

Forskráning

Allir farþegar sem ferðast til Íslands þurfa að forskrá komu sína áður en ferðalagið hefst. Hægt er að forskrá sig hérHlekkur opnast í nýjum flipa. Nánari upplýsingar um COVID-próf, einangrun, sóttkví eða tilskilin gögn má finna hérHlekkur opnast í nýjum flipa.

Þessi hlekkur vísar á upplýsingasíðu yfirvalda vegna COVID-19 á Íslandi. Embætti landlæknis og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra uppfæra og reka síðuna.

Sýnataka og sóttkví barna

Sýnataka og sóttkví barna: Börn fædd 2005 eða síðar þurfa ekki að fara í sýnatöku á landamærunum. Þau eru undanþegin skyldu til að framvísa neikvæðu PCR vottorði við komu. Ferðist barn með manneskju sem hefur bólusetningarvottorð, eða vottorð um fyrra smit, fylgir barnið viðkomandi og þarf ekki að fara í sóttkví. Sömu reglur gilda um barn sem ferðast eitt.

Ólögráða börnum yngri en 18 ára er í öllum tilvikum heimilt að ferðast til Íslands með foreldrum sínum að því gefnu að foreldrarnir hafi leyfi til að koma til landsins. Börn fædd 2004 og fyrr þurfa þó að fara í sýnatöku á landamærunum, 5 daga sóttkví, og aðra sýnatöku að henni lokinni nema þau sýni vottorð um fulla bólusetningu.

Hvernig virkar sóttkví?

Allar upplýsingar um sóttkví og sóttvarnarhólf má finna hér.Hlekkur opnast í nýjum flipa

Hvað má ég gera á meðan ég er í sóttkví?

Fara í stutta gönguferð i nágrenni sóttkvíarstaðar

Nota flugrútu, einkabíl og leigubíl í ferð frá flugvelli

Fara til læknis en hringja fyrst

Hvað má ég ekki gera á meðan ég er í sóttkví?

Umgangast annað fólk

Vera í fjölmenni

Nota strætó, innanlandsflug og almenningssamgöngur

Fara í bíltúr

Fara í búðir eða á veitingastað

Búa í húsbíl/tjaldvagni

Dvelja á farfuglaheimili

Fara á ferðamannastaði

Fara að gosstöðvunum

Undanþágur frá skimun og sóttkví

Þeir farþegar sem eru undanþegnir reglum um tvöfalda skimun og sóttkví við komuna til landsins eru:

  • Farþegar sem koma frá Grænlandi eða Færeyjum og hafa ekki dvalið utan þeirra landa undanfarna 14 daga.
  • Tengifarþegar sem fara ekki út fyrir viðkomandi landamærastöð þurfa ekki að fara í skimun og sóttkví.
  • Tengifarþegar sem dvelja innan við 48 tíma á Íslandi en koma frá hááhættusvæði verða að dvelja á sóttkvíarhóteli. Þeim er vísað á sóttkvíarhótel af landamæravörðum. Tengifarþegar sem koma frá öðrum svæðum eru ekki skyldaðir á sóttkvíarhótel en verða að vera í sóttkví.

Jákvætt COVID-19 próf á Íslandi

Einangrun

Jákvæð niðurstaða úr COVID-19 prófi leiðir alltaf til einangrunar til að koma í veg fyrir frekari smit innanlands.

Landlæknisembættið hefur gefið út leiðbeiningar fyrir einangrun í heimahúsi sem lesa má hér.Hlekkur opnast í nýjum flipa

Flug þitt með PLAY

Ef að þú greinist með jákvtt COVID-19 próf á landamærum Íslands og þarft að breyta ferðaplönum þínum, hafðu endilega samband við okkur hér eða settu inn beiðni hérHlekkur opnast í nýjum flipa um breytingu á bókun.

Rakning C-19 appið

Mælt er með því að allir sem ferðast til landsins hlaði niður smáforritinu Rakning C-19.

Hvernig bóka ég COVID-19 próf á Íslandi?

Ef grunur leikur á smiti af COVID-19 er viðkomandi einstaklingur beðinn að hafa samband við heilsugæsluna sína, netspjall á www.heilsuvera.is eða Læknavaktina í síma 1700.