Skoða efni

Stjórn PLAY

Sigurður Kári Kristjánsson, stjórnarformaður PLAY

Sigurður Kári Kristjánsson

Stjórnarformaður

Sigurður Kári Kristjánsson er hæstaréttarlögmaður og einn eiganda lögmannsstofunnar LLG lögmenn ehf., sem hann hefur rekið í félagi aðra síðan 2011. Sigurður Kári hefur um langt skeið verið stjórnarformaður Náttúruhamfaratrygginga Íslands en hefur auk þess setið í fjölmörgum stjórnum og ráðum, þ. á m. bankaráði Seðlabanka Íslands.  Sigurður Kári var alþingismaður Reykvíkinga á árunum 2003-2009 og varaþingmaður til ársins 2011. Sigurður Kári er óháður félaginu, daglegum stjórnendum þess og stórum hluthöfum.

Elías Skúli Skúlason, varaformaður stjórnar PLAY

Elías Skúli Skúlason

Varaformaður stjórnar

Elías Skúli Skúlason er hluthafi í félaginu í gegnum FEA ehf. og er varaformaður stjórnar PLAY. Elías Skúli býr yfir rúmlega 28 ára reynslu af störfum í flugiðnaði og flugrekstri. Elías Skúli var einn af stofnendum Airport Associates (stofnað 1997) og Bluebird Cargo (stofnað 1999). Elías Skúli sinnti mörgum stjórnunarstöðum í Bluebird Cargo, þ.m.t. starfaði hann sem framkvæmdastjóri fyrirtækisins 2007-2014. Elías Skúli er óháður stórum hluthöfum PLAY og daglegum stjórnendum þess en ekki félaginu.

Valentín Lago. stjórnarmaður PLAY.

Valentín Lago

Valentín Lago á að baki virtan feril í flugiðnaði sem spannar yfir 30 ár. Hann hefur sinnt fjölmörgum stjórnunarstörfum, þ.m.t. stjórnarsetu og starfað sem framkvæmdastjóri. Má þar helst nefna framkvæmdastjórn í Air Nostrum, framkvæmdastjóri flugrekstrarsviðs, bæði hjá Ibera Express og Vueling ásamt því að starfa sem framkvæmdastjóri Air Europa. Undanfarið hefur hann einbeitt sér að því að reka sína eigin ráðgjafastofu. Lago er meðal annars með PhD-gráðu í hagfræði, gráðu í flugvélaverkfræði og AMP-gráðu í viðskiptafræði. Valentín er er óháður félaginu, daglegum stjórnendum þess og stórum hluthöfum.

Guðný Hansdóttir, stjórnarkona PLAY

Guðný Hansdóttir

Guðný er hluthafi í félaginu í gegnum KG eignarhald ehf. en hún býr yfir rúmlega 15 ára reynslu af flugiðnaði. Guðný starfaði áður sem forstöðumaður flugliða Icelandair, framkvæmdastjóri mannauðssviðs Air Atlanta, framkvæmdastjóri erlendrar starfsemi hjá Pennanum Officeday og framkvæmdastjóri mannauðssviðs hjá bæði Innnes og Skeljungi. Guðný er með MBA gráðu frá Florida Institute of Technology og BS gráðu í markaðsfræði frá sama skóla. Guðný hefur lokið hæfismati hjá Fjármálaeftirlitinu. Guðný starfaði sem framkvæmdastjóri mannauðssviðs hjá Inness 2014-2018 og framkvæmdastjóri mannauðssviðs hjá Skeljungi 2009-2014. Áður var hún framkvæmdastjóri erlendrar starfsemi hjá Pennanum Officeday, framkvæmdastjóri mannauðssviðs Air Atlanta og forstöðumaður flugliða Icelandair. Guðný hefur setið í stjórn Parlogis og Mjallar Friggjar. Í dag situr hún í stjórn VÍS ásamt því að sitja þar einnig starfskjaranefnd og áhættunefnd. Guðný er óháð félaginu, daglegum stjórnendum þess og stórum hluthöfum.

María Rúnarsdóttir, stjórnarkona PLAY

María Rúnarsdóttir

María Rúnarsdóttir er sjálfstætt starfandi fjárfestir. Áður starfaði María meðal annars sem fjármálastjóri fasteignafélagsins SMI ehf. og Korputorgs ehf., ráðgjafi hjá KPMG Ráðgjöf og sem fjármálastjóri Svar tækni ehf., auk þess að vera einn stofnenda MINT Solutions ehf. María situr í dag í stjórn nokkurra félaga, s.s. Arctica Finance hf., Umbra ehf., Uniconta Ísland ehf., NMR ehf., og Höfðakór ehf. María er með MBA gráðu frá MIT (Massachusetts Institution of Technology) í Bandaríkjunum og B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík. María er óháð félaginu, daglegum stjórnendum þess og stórum hluthöfum.