Skoða efni
27. May 2025

PLAY flýgur beint til Agadir

hvít hús sem þekja gyllta strandlengju Agadir í Marokkó

Flugfélagið PLAY hefur hafið sölu á áætlunarferðum til marakósku borgarinnar Agadir. Fyrsta flugið verður 19. desember næstkomandi en flogið verður einu sinni í viku á föstudögum þangað til um miðjan apríl 2026. PLAY verður einnig með áætlunarflug til Marrakesh í Marakkó næsta vetur.

Flugtíminn til Agadir er um fimm og hálf klukkustund en borgin liggur við Atlantshafið og er veðurfar þar því svipað og á Tenerife. Íbúar Agadir upplifa að jafnaði 300 sólardaga á ári en þar má finna gylltar strendur  og golfvelli á heimsmælikvarða. Agadir er vinsæll áfangastaður sólþyrstra íbúa Evrópu yfir vetrartímann og er afar nútímaleg og vinaleg. Borgin hefur farið í gegnum talsverða endurnýjun þar sem markmiðið hefur verið að skapa afslappaða upplifun fyrir íbúa og þá sem heimsækja Agadir. 

PLAY er nú með 16 sólarlandaáfangastaði í sölu en þar á meðal eru átta á Spáni, fjórir í Portúgal og einnig Split í Króatíu og Antalya í Tyrklandi  ásamt fyrrnefndum Agadir og Marrakesh.

„Það er stefnan okkar hjá PLAY að bjóða Íslendingum upp á glæsilegt úrval sólarlandaáfangastaða og Agadir mun engan svíkja. Hvort sem leitað er eftir afslöppun á gylltum ströndum eða að njóta sín á glæsilegum golfvöllum, þá er er Agadir frábær kostur. Flugáætlunin okkar til borgarinnar mun ná yfir jólin í ár og páska á næsta ári og veturinn þar á milli og ég er sannfærður um að margir muni nýta þetta einstaka tækifæri til að upplifa þessa mögnuðu borg,” segir Einar Örn Ólafsson, forstjóri PLAY.