Skoða efni
25. Aug 2023

Emilio Chacon Monsant til PLAY

Flugfélagið PLAY hefur ráðið Emilio Chacon Monsant sem yfirmann hliðartekna. Emilio er með  yfirgripsmikla reynslu úr flugbransanum. Hann gengur til liðs við PLAY frá flugfélaginu Wizz Air. Áður var hann yfirmaður hliðartekna hjá flugfélaginu Ryanair en hefur einnig starfað hjá Vueling, Avianca og Aero Mexico.

 

Hliðartekjur hafa verið í örum vexti hjá flugfélaginu PLAY undanfarin misseri og er ráðning Emilio mikilvægt skref í átt að því að auka þær enn frekar. Hlutverk Emilio verður að samþætta áherslur á milli sviða innan flugfélagsins í því ljósi að setja flugfélagið í enn betri stöðu til nýta þau tækifæri sem eru fyrir hendi sem og að skapa ný.

 

„Það er mikill fengur fyrir okkur að hafa fengið Emilio til liðs við PLAY. Með honum fylgir gríðarleg reynsla í flugiðnaðinum sem mun nýtast okkur í þeirri vegferð að auka hliðartekjur sem eru afar mikilvægur liður í afkomu félagsins,“ segir Sonja Arnórsdóttir, framkvæmdastjóri PLAY.

 

Emilio er frá Barcelona á Spáni en PLAY flýgur einmitt til átta áfangastaða í heimalandi Emilio og þar að auki tveggja í Portúgal.

 

„Ég er mjög spenntur að ganga til liðs við PLAY á þessum tímapunkti í sögu þessa unga flugfélags. PLAY hefur stækkað hratt undanfarin tvö ár en er nú komið með frábærar undirstöður til að færa sig á næsta stig. PLAY er í góðri stöðu til að láta til sín taka og ég er fullur eftirvæntingar að ná metnaðarfullum markmiðum með þessu frábæra teymi,” segir Emilio.