Skoða efni
9. Oct 2023

85% sætanýting, 164 þúsund farþegar og áhöfn Play valin besta áhöfnin af USA Today.

PLAY flutti 163,784 farþega í september, sem er 77% aukning frá september 2022 þegar PLAY flutti 92.181 farþega. Sætanýtingin í liðnum septembermánuði var 85%, samanborið við 81,5% sætanýtingu í september í fyrra. PLAY var með stundvísi upp á 85.1% í september 2023.

Af öllum farþegum sem ferðuðust með PLAY í september 2023 voru 22,9% að fljúga frá Íslandi, 31.6% voru á leið til Íslands og 45.5% voru tengifarþegar (VIA).

September mánuður er jafnan frekar rólegur sögulega séð þegar kemur að farþegaflutningum í flugi. Þess vegna er það eftirtektarvert að PLAY hafi skilað 85% sætanýtingu í þeim mánuði, en félagið hefur aukið framboð sitt til mun það sem af er ári með því að bæta við fjórum nýjum farþegaþotum í flota sinn fyrir sumarið.

Meðalhliðartekjur halda áfram að aukast hjá PLAY en þær voru 23% hærri í september 2023 samanborið við september 2022 og lítur út fyrir að sú þróun haldi áfram á komandi mánuðum.

Áhöfn PLAY valin sú besta af USA Today

Áhöfn flugfélagsins PLAY er sú besta að mati lesenda bandaríska fjölmiðilsins USA Today. Þetta er niðurstaða kosningar sem fór fram á vegum USA Today 10Best þar sem PLAY var tilnefnt ásamt þekktustu flugfélögum heims. Sérfræðingar á vegum USA Today 10Best tilnefndu áhafnir sem síðan voru lagðar fyrir dóm lesenda sem fengu fjórar vikur til að segja sína skoðun með því að greiða atkvæði með þeirri áhöfn sem þeim þótti bera af. Þar varð áhöfn PLAY hlutskörpust en önnur flugfélög sem voru tilnefnd ásamt PLAY voru Virgin Atlantic, Fiji Airways, Southwest Airlines, Delta Airlines, Korean Air, British Airways, Emirates, Singapore Airlines og Cathay Pacific.

Sumarið í 1,6 milljarða hagnaði hjá PLAY

PLAY skilaði 1,6 milljarða króna hagnaði eftir sumarið 2023. Þetta er í fyrsta sinn sem félagið skilar hagnaði af rekstri eftir skatta að lokinni sumarvertíð. Það sýnir að PLAY var arðbært félag í sumar og að viðskiptamódel þess sé að sanna sig.

PLAY býst við að flytja um 1,5 milljónir farþega árið 2023 og er búist við að félagið flytji 1,8 milljónir farþega árið 2024. PLAY hefur tryggt sér tvær farþegaþotur fyrir árið 2025 sem mun stækka flotann í 12 þotur af A320neo fjölskyldunni frá Airbus.

Birgir Jónsson, forstjóri PLAY:

„Það er hressandi að sjá svo góða niðurstöðu fyrir septembermánuð, sem hefur reynst fremur erfiður  í sögulegu samhengi í flugbransanum. Við höldum áfram að skila góðri niðurstöðu á lykilmörkuðum okkar í september eftir að hafa náð mjög góðri útkomu yfir sumarið. Við nærri því tvöfölduðum tekjur okkar yfir sumarmánuðina 2023 miðað við árið í fyrra og félagið skilaði 1,6 milljarða hagnaði yfir sama tímabil.

Að sjá svo áhöfnina okkar hljóta þann mikla heiður að vera valin besta áhöfnin af lesendum USA Today er í einu orði sagt stórkostlegt. Lesendur gátu valið úr fríðum hópi áhafna frá þekktustu flugfélögum í heimi og að PLAY hafi hlotið tilnefningu gerir okkur afar stolt. Þetta er afrakstur þeirrar fagmennsku sem flugliðarnir okkar stunda á degi hverjum í háloftunum. Það eru ekki nema tvö ár síðan PLAY fór í sitt fyrsta farþegaflug og að vera komin á þann stað að hljóta tilnefningu með þessum stóru félögum er glæsilegur árangur. Að niðurstaðan sé sú að við stöndum uppi sem sigurvegarar í þeim hópi er magnað afrek.

Við horfum björtum augum á komandi vetur og ég veit að starfsfólk PLAY mun halda áfram að skila félaginu þeirri velgengni sem það nýtur og farþegum góðri upplifun í háloftunum.“