Skoða efni
Paragliding over a dreamy beach on a sunny day in Antalya Turkey

Ódýr flug í haust

Það jafnast fátt á við að flýja haustlægðirnar í sólina eða heimsækja borg sem skartar sínu fegursta á haustin. Haustið er nefnilega fullkominn tími fyrir frí, hvort sem það eru rólegir dagar á strönd, borgarferðir fullar af menningu og mat, eða einfaldlega góð pása frá hversdagsleikanum.

Hvert er best að fara í haustfrí?

Skoðaðu ævintýralegt úrval áfangastaða sem við fljúgum til í haust og bókaðu flug á betra verði. Við bjóðum upp á regluleg haustflug frá Íslandi til sólarlanda, borga og ævintýra. Finndu haustfríið sem hentar þér og þínum.

Þú getur líka kíkt á flugáætlunina okkar og séð hvert við fljúgum allt árið um kring.

Sólarferðir í haust

Framlengdu sumarið á áfangastöðum sem bjóða upp á gylltar strendur, dásamlegt loftslag og fullkomin skilyrði fyrir haustfrí með fjölskyldunni, maka eða vinum.

Þessi sérstaka borg á suðausturströnd Spánar er verðugur áfangastaður fyrir alla ferðalanga. Alicante er best þekkt fyrir sólríkar strendur og hressandi næturlíf en höfum það á hreinu að borgin er mun fjölbreyttari en flesta grunar.

Dreymir þig um frí á sólríkri strönd í borg sem er svo sneisafull af sögu og menningu að það er óhjákvæmilegt að snúa aftur og líklega aftur og aftur? Þá er strandborgin Antalya á suðurströnd Tyrklands eitthvað fyrir þig.

Ef hugmyndin er að finna fjölbreyttan áfangastað komast fáar borgir með tærnar þar sem Barcelona hefur hælana. Þessi sólríka stórborg á austurströnd Spánar er evrópsk nútímaborg með sögulegum djásnum og dásamlegum baðströndum.

Portúgalska perlan Faro býður ferðamönnum upp á fjölbreytt úrval af afþreyingu hvort sem fólk hefur áhuga á sögu, náttúrufegurð eða vill einfaldlega bara láta hrollinn líða úr sér á gullfallegri strönd.

Fuerteventura, ein af spænsku Kanaríeyjunum, er tilvalinn áfangastaður til að stranda á. Þessi töfrandi Kanaríeyja státar af gullfallegri strandlengju og tærum sjó en hér þykja aðstæður til útivistar fyrsta flokks.

„Kanarí“ eins og Íslendingar kalla hana oftast er ekki stór eyja en hér er að finna óviðjafnanlega náttúrufegurð og fjölbreytta áfangastaði, þ.m.t. Las Palmas, höfuðborg Kanaríeyja en meira að segja borginni fylgir stórfengleg strandlengja.

Í Lissabon má finna lifandi listasenu og framsækna matargerð þar sem allt er í boði, svo lengi sem það bragðast vel. Strandlengja borgarinnar rammar inn bæði Atlantshafið og þessa unaðslegu upplifun fyrir öll skynfærin.

Skelltu þér í sólina sem lifir allt árið um kring á Madeira, sjáðu stórkostlegt landslagið, prófaðu fyrsta flokks vín og njóttu hlýrrar portúgalskrar gestrisni á þessari heittempruðu paradísareyju.

Höfuðborg og stærsta borg Spánar með nærri 3,5 milljónir íbúa er sannkölluð paradís af sólskini, menningu, arkitektúr, listum og meiri matardýrð en meðaljón getur ímyndað sér. Ekki missa af því allra besta í Madríd.

Malaga er ekki bara sólríkasti borg Spánar heldur einnig ein af elstu borgum Evrópu en hér er veðráttan dýrðleg, útsýnið magnað og kjöraðstæður til að lifa í vellystingum.

Marrakesh er dáleiðandi blanda af gamaldags dulúð og nútímalegum krafti, sem hvetur gesti til að kanna völundarhús hennar, iðandi souk-markaði, spennandi handverk og glæsilega byggingarlist.

Porto þykir ein fallegasta borg Evrópu enda státa framhliðar húsanna í elsta hluta borgarinnar gullfallegum azulejo-flísum í bláu og hvítu og áin Douro lykkjast um litríkar göturnar. Smakkaðu allt og verslaðu meira fyrir miklu minna.

Ævintýralegar strendur og náttúrufegurð strandborgarinnar Split lætur engan ósnortinn. Ef Króatía er draumurinn þá er Split sannarlega staðurinn.

Má bjóða þér frí í sólinni á eyju rétt utan við strendur Afríku þar sem sólin skín nánast alla daga á strendur og sumardvalarstaði með fallegum klettum og fjalllendi í bakgrunni? Þá er Tenerife alltaf góð hugmynd.

Borgarferðir í haust

Haustið klæðir borgirnar í nýjan lit. Hvort sem þig langar að rölta um sögulegar götur, skoða safn eða njóta útsýnis af þakbar, þá eru borgarferðir í haust tilvaldar til að hlaða batteríin…eða fylla ferðatöskuna.

Steinlögð stræti, dramatísk saga, einstakur arkitektúr, mögnuð myndlist og kynlegur karakter fyrir alla peningana. Við erum að sjálfsögðu að tala um áfangastaðinn Amsterdam.

Baltimore er stórborg á austurströnd Bandaríkjanna en þar búa 600.000 manns í fallegri hafnarborg sem heimamenn kalla Sjarmaborgina. Ef alvöru Ameríka með einstökum karakter höfðar til þín, er Baltimore áfangastaður fyrir þig.

Borgin Billund í Danmörku er líklega efst á óskalista barna á öllum aldri. Hvort sem þú ert að leita að hárréttum áfangastað fyrir næsta fjölskyldufrí eða æðislegri helgarferð fyrir vinahópinn er Billund frábær staður að vera á.

Boston er gamaldags sjarmör sem kann að meta fágaða nálgun á lífið en ef þig langar bara í kaldan bjór og geggjaða pítsu í afslöppuðum félagsskap lifir sá draumur líka góðu lífi í Boston.

Höfuðborg og stærsta borg Írlands er sjarmerandi og vinalegur staður fullur af áhugaverðri sögu og líflegri menningu. En Dublin er líka talin ein fallegasta borg heims með gullfallegar göngugötur, steini lögð stræti og sögufrægar byggingar.

Höfuðborg Danmerkur er svo sneisafull af óviðjafnanlegum ævintýrasjarma að leitun er að öðru eins. Gott frí í Kaupmannahöfn ætti að vera bæði afslappað og hressandi í þessari fallegu útgáfu af nostalgískri dúkkuhúsaborg.

London, höfuðborg Englands, er ekki bara evrópsk menningar- og fjármálaborg. Þetta er hin eiginlega stórborg, þungamiðja mannlífs og menningar. Ekki láta ímyndunaraflið halda aftur af þér því það er fátt sem ekki má finna, sjá, upplifa og kaupa í London.  

Fyrir heimsborgara á ferð og flugi jafnast enginn staður á við París. Þetta er líklega heimsins vinsælasti áfangastaður og með réttu. Frí í París er líkt og að vera ferðamaður í yndislegum draumi og það er þessi draumkennda stemning sem lifir góðu lífi löngu eftir að heim er komið.

Fáar borgir hafa jafndjúpstæð áhrif á gesti sína eins og Prag, fegurðardrottning Evrópu og höfuðborg Tékklands. Prag er borg fyrir fagurkerann, sögunördið, listaspíruna og heimsborgann.

Varsjá er höfuðborg Póllands og virkilega einstakur áfangastaður. Varsjá nær að sameina gamla sögu sína og nýja framúrstefnulega menningu með söfnum, viðburðum og æðislegu borgarumhverfi. Borgaðu minna fyrir flugið og fararmátana og leyfðu þér raunverulegan munað í þessari spennandi menningarborg og höfuðborg Póllands.

Verið velkomin til Vilníus, litríkrar höfuðborgar Litháen sem þykir sannkallaður gimsteinn í Eystrasaltslöndunum. Vilníus býður gestum upp á ógleymanlega upplifun, ný ævintýri, þægilega stemningu og allt þar á milli.

Hvað er að frétta?

Vertu áskrifandi að fréttabréfinu okkar og þú missir aldrei af bestu tilboðunum, nýjustu áfangastöðunum og fleiri skemmtilegum fréttum. Þú hefur engu að tapa!