Skoða efni

París

Ódýrt flug til Parísar

Draumkennd stemning og fágaður munaður

Fyrir heimsborgara á ferð og flugi jafnast enginn staður á við París. Þetta er líklega heimsins vinsælasti áfangastaður og með réttu. Frí í París er líkt og að vera ferðamaður í yndislegum draumi og það er þessi draumkennda stemning sem situr eftir löngu eftir að heim er komið.

Kannski eru það myndrænu göturnar og sjarmerandi götuhornin sem minna á dúkkuhús í fullri stærð eða leikmyndir. Kannski er það lyktin af nýbökuðu brauði sem lokkar fólk inn í bakaríin sem virðast vera alls staðar. Steinlögð stræti, sæt kaffihús, dásamlegar verslanir, guðdómlegar súkkulaðigerðir og gangandi vegfarendur með franskbrauð, eins og það sé eitthvað grín, sem það er alls ekki. Gleymdu keto-fæðinu og kolvetnisfría átakinu og njóttu Parísar í botn á hennar forsendum: borg munaðar og lystisemda. Pantaðu rauðvínsglas með steikinni í hádegismat og hafðu engar áhyggjur af þessu. Þú átt eftir að ganga allar þessar hitaeiningar af þér og slá nýtt met í skrefafjölda í óstöðvandi rölti um heimsins fallegustu götur.

Forboðið snarl og heimsfræg kennileiti

Á milli dásamlegra bita af forboðnu snarli skaltu kíkja á eitthvað af heimsfrægum kennileitum Parísar. Listinn er langur en það er ekki annað hægt en að sjá Eiffelturninn, Louvre-safnið, Notre Dame, Katakomburnar og Sigurbogann. Verðugur leiðangur er svo að ganga upp heimsins sætustu borgarhæð, Montmartre, skoða gullfallega Sacre Coeur basilíkuna á toppnum og njóta útsýnisins yfir Parísarborg. Ef þetta hljómar allt eins og hálfgerð klisja um París þá er það hárrétt, en það er ekki að ástæðulausu að þetta eru svona vinsælir og frægir áfangastaðir.

Láttu nú draumaklisjuna rætast, nældu þér í franskbrauð til að stinga ofan í dýru hliðartöskuna og farðu í rómantískan göngutúr eftir bökkum Signu. Það er vel þess virði.

Á heimavelli

„Það þarf ekkert að vera fínasta hótelið af því maður notar náttúrulega herbergið ekkert voðalega mikið,“ segir Elísabet og uppsker lítið hláturskast frá eiginmanni sínum sem segir: „París er sko Borg ástarinnar. Notar maður ekkert herbergið?“ Fáðu innsýn inn í rómantískustu borg í heimi frá hjónunum Gunnari Steini Jónssyni og Elísabetu Gunnarsdóttur.

Vinsæl afþreying í París

Fáðu leiðsögn um ævintýralega höllina og guðdómlegu garðana í Versölum. Sjón er sögu ríkari en íburðarmiklar skreytingar, ævintýraleg landslagshönnun og dramatísk saga taka hér höndum saman inni sem úti enda eru báðir staðir á heimsminjaskrá UNESCO.

Gefðu þér aðgang að Disneylandi í París til að upplifa heiminn eins og yndislega fantasíu í einn dag. Hér er allt ævintýralegt, áhugavert, barnalegt á besta máta og umfram allt stórskemmtilegt! Þetta er fullkominn dagur fyrir börn á öllum aldri.

Hvað hljómar betur en fáguð vínsmökkun í fallega uppgerðum vínkjallara í miðri París? Líklega ekkert. Hér er smakkað á sex frönskum vínum frá ólíkum héröðum Frakklands. Sannir fagmenn leiða þig í gegnum upplifunina og kenna þér sitt hvað um franska vínseðla og merkingar.