Skoða efni

Madríd

Ódýrt flug til Madríd

Menning, verslun og endalaust sólskin

Höfuðborg og stærsta borg Spánar með nærri 3,5 milljónir íbúa er sannkölluð paradís af sólskini, menningu, arkitektúr, listum og meiri matardýrð en meðaljón getur ímyndað sér. Madríd er líka mekka verslunar og hér er að finna ógrynni af mörkuðum, verslunargötum, litríkum sérverslunum og fágaðri hönnun. Þá er ótalin sagan, hallirnar, heimsfrægu söfnin og konungsfjölskyldan, svo ekki sé minnst á ástríðufullt samband borgarinnar við fótbolta. Það er ekki annað hægt en að elska Madríd.  

Þegar ferðamenn rölta um gönguvæna borgina fá þeir fljótlega tilfinningu fyrir stærð borgarinnar, fjölmörgum glæsihúsunum í endurreisnarstíl og endalausu úrvalinu af verslunum og matarmenningu. Hér þurfa allir að smakka á tapas-réttum sem má finna í gríðarlegu úrvali í Madríd og hungraðir ættu að taka stefnuna á þá fjölmörgu matarmarkaði og mathallir sem er að finna í borginni. Við mælum sérstaklega með San Miguel markaðinum.

Þeir sem eru að skoða Madríd í fyrsta skipti ættu að byrja á Plaza Mayor og skoða þetta magnaða torg sem er umkringt gömlum sögufrægum byggingum sem eiga rætur sínar að rekja allt frá 16. öld. Ekki missa af frægum veggmyndum Carlos Franco á veggjum Casa del Panadería áður en þú röltir um bogagöngin, færð þér alvöru sangríu, rissar upp gamla manninn á næsta borði og skrifa sonnettu um dúfur.

Skemmtileg söfn og heimsfræg listaverk

Talandi um erkitýpíska Madríd, gríptu þér tapas til að taka með og farðu í lautarferð í dásamlegum Sabatini-görðunum til að njóta stórbrotins útsýnisins yfir Konungshöllina. Metnaðarfullur verslunarleiðangur ætti að byrja í Salamanca-hverfinu sem er stútfullt af vöruhúsum, hönnunarverslunum og stórverslunum en ef þú vilt rólegri upplifun í sjarmerandi stemningu er La Latina hverfið líklega nærtækara. Það er fullt af litlum litríkum sérverslunum og kaffihúsum og hér er unun að verja deginum alla vikuna en við mælum sérstaklega með El Rastro markaðinum á sunnudögum fyrir þá sem ætla í alvöru fjársjóðsleit.

Glaðlyndir lífskúnstnerar geta notið lífsins í Museo Nacional del Prado, þar sem er að finna einhver fegurstu listverk heims, og haldið svo beint í nýlega safnið Museo de las Ilusiones sem fagnar skynvillum og sjónhverfingum. Þetta er frábær áfangastaður fyrir alla fjölskylduna fyrir fólk sem kann að meta að láta koma sér skemmtilega á óvart. Safnið er fullt af gagnvirkum sýningum og sannkölluðum augnakonfektum en það sama má einmitt segja um þessa dásamlegu borg Madríd.

Á heimavelli

„Hún bara nær manni. Ég myndi segja að þetta væri eiginlega bara ástin í lífi mínu, fyrir utan manneskjur,“ segir Hugrún. „Já. Það er Madríd,“ jánkar Birkir Blær. Kíktu á spjall þeirra Birkis Blæs Ingólfssonar og Hugrúnar Halldórsdóttur um þessa gömlu, fallegu og sólríku stórborg sem er Madríd.

Vinsæl afþreying í Madríd

Farið er með rútu frá Madríd og á einum degi eru heimsóttir tveir staðir á heimsminjaskrá UNESCO. Skoðaðu þröng stræti Toledo, kirkjurnar, moskurnar og bænahúsin og gotnesku dómkirkjuna og gyðingahverfið í Segovia. Hlífðu þér við akstri og kortaskoðun og eltu bara leiðsögumanninn á milli kennileita sem ratar allt og veit áhugaverðustu staðreyndirnar.

Hér mætast spænsk matargerð og spænsk saga í skemmtilegri og lifandi afþreyingu. Rölt er á milli aldagamalla tapas-staða, sögufrægra torga og dularfullra stræta og hægt er að fræðast um sögu Madríd, konunga og stríð en ekki síður um hvítlauksrækjur og brauðskorpu.

Þetta er hjólreiðaferð með leiðsögn um það „besta í Madríd“. Hjólað er á þægilegum hraða á milli kennileita í góðum hópi með frábæran leiðsögumenn sem þekkir borgina út og inn. Sjáðu Madríd með augum og aðstoð heimamanna.