Skoða efni

Gran Canaria

Ódýrt flug til Gran Canaria

Gran Canaria, eða „Kanarí“ eins og Íslendingar kalla hana oftast, tilheyrir Kanaríeyjum, spænska eyjaklasanum undan norðvesturströnd Afríku. Eyjan sjálf er ekki stór en hér er að finna óviðjafnanlega náttúrufegurð og fjölbreytta áfangastaði, þ.m.t. Las Palmas, höfuðborg Kanaríeyja.

Á syðsta hluta eyjunnar eru einhverjir vinsælustu sumardvalarstaðir Evrópubúa, svo sem Playa del Inglés, Puerto Rico og San Augustín. Á norðurströndinni, í aðeins um klukkutíma akstursfjarlægð, er höfuðborgin Las Palmas en miðja eyjarinnar er skógi vaxið fjalllendi. Það mætti halda að þessi eyja hafi verið sérhönnuð fyrir manneskjur því hér eru aðstæður eins og best verður á kosið frá náttúrunnar hendi. Hitastigið lónar um og yfir 20°C, andvarinn frá sjónum kælir hitann frá sólinni og meðfram allri eyjunni eru unaðslegar strendur og tær sjór.

Borg, strönd og eintóm sól

Strandhótelin og gistimöguleikarnir á suðurströndinni eru vinsælustu áfangastaðir sóldýrkenda sem vilja einfaldlega fá einn kaldan með gula sandinum sínum en fyrir þá sem vilja menningu, búðir og borgarsjarma með strandlífinu er borgin Las Palmas algjör perla. Meðfram borginni er falleg 3,5 km strandlengja Las Canteras strandar. Las Canteras er skipt upp í minni hluta sem heimamenn nota ýmist í vatnasport eða afslöppun eftir aðstæðum. Nyrsti hlutinn kallast Playa Grande eða „Stóra ströndin“. Hún er breið, stór og sjórinn lygn þökk sé kóralrifi sem heldur öldunum í skefjum. Hér er líka nóg af fiskum og litríku lífríki sem er dásamlegt að fylgjast með af vindsænginni eða bara á kafi með sundgleraugun. Flestir fjárfesta í loftpípu til að snorkla og eyða sem mestum tíma við að skoða litríka fiskana og mjúkan sandinn á botninum. Það er ástæða fyrir því að strendur Las Palmas eru ítrekað valdar bestu borgarstrandir í heimi.

Á Kanarí er líka margt í boði fyrir þá sem þurfa að komast af sandinum. Golfvellirnir eru dásamlegir, aðstæður til hjólreiða fullkomnar, dýragarðar, vatnagarðar og söfn eins og best verður á kosið og útsýnið og stemningin í sjarmerandi fjallaþorpunum einstök upplifun.

Það besta við Gran Canaria er líklega þessi frábæra blanda af sólarfríi á ströndinni við frábær skilyrði, náttúrufegurðinni í fjöllunum og sjarmerandi miðborgarmenningunni. Fáðu það allra besta út úr fríinu, mættu með kröfur og leyfðu Kanarí að heilla þig upp úr sandölunum, gönguskónum og froskalöppunum.

Vinsæl afþreying á Gran Canaria

Lærðu að skilja, hlusta á og njóta umhverfisins á vínekrunni Los Lirios í þessari upplifun fyrir öll skynfærin þar sem komið er við í vínkjalllaranum, á vínekrunni og veitingastaðnum.

Má bjóða þér að uppgötva ævintýralega staði og nýtt útsýni á Gran Canaria? Hvíldu þig á mannmergðinni og fáðu leiðsögn um faldar perlur þessarar fallegu eyju.

Lærðu á brimbretti í fullkomnu veðri, í fullkomnu hitastigi og við fullkomnar aðstæður með æðislegar öldur og frábæra, þaulreynda kennara þér til stuðnings.