Skoða efni

Toronto

Ódýrt flug til Toronto

Vinalega stórborgin Toronto

Toronto er heimsborg í Ontario-fylki í Kanada. Þetta er stærsta borg Kanada sem er einmitt annað stærsta land í heimi að flatarmáli. Í Toronto búa um þrjár milljónir og hér ræður fjölmenningin ríkjum því í borginni eru töluð fleiri en 140 tungumál. Þetta fjölmenningarsamfélag sér svo um að viðhalda litríkri og lifandi lista- og tónlistarsenu sem blómstrar innan um heimsfræg söfnin og frábæra veitingastaðina.

Fyrir utan þessa heimsfrægu vinalegu stemningu sem Kanadabúar eru frægir fyrir, er fjölmargt sem gerir Toronto að eftirsóknarverðum áfangastað. Bókstaflega hæstur á þeim lista er CN Turninn sem er hæsta frístandandi bygging á vesturhveli jarðar enda hvorki meira né minna en 553 metrar á hæð. Það segir sig sjálft að útsýnispallurinn er gríðarlega vinsæl og verðug afþreying og svo geta þeir alla huguðustu látið sig vaða út á brúnina í Edgewalk í viðeigandi öryggisbúnaði.

Söfnin Royal Ontario Museum og Art Gallery of Ontario eru bæði á heimsmælikvarða og þangað er skyldumæting fyrir alla sem kunna að meta mannkynssögu, listir og menningu. Náttúrulífsunnendur geta svo notið lífsins í gullfallegu umhverfi á Toronto Islands eða heimsótt dýragarðinn í borginni sem er upplifun út af fyrir sig.

Í heimsborginni Toronto er nánast endalaust úrval af afþreyingu en láttu ekki ferðalagið takmarkast við stórborgina. Kanada er jú eitt af stærstu löndum í heimi og í Ontario-fylki er fjölbreytt úrval af náttúrufegurð og áhugaverðum stöðum. Við mælum sérstaklega með borginni Hamilton sem er rétt hjá flugvellinum okkar í Kanada. Hamilton er falleg og spennandi borg í fullkominni stærð því það er nóg að sjá og skoða í Hamilton þótt stemningin sé meira eins og í vinalegum smábæ. Þá ætti enginn að láta Niagara-fossa fram hjá sér fara en kanadískur hluti fossanna er í innan við klukkutíma akstursfjarlægð frá flugvellinum. Fyrir þau sem vilja útivist á heimsmælikvarða er Blue Mountain fullkominn áfangastaður því þetta framúrskarandi skíðasvæði breytist í skemmtilega og fjölbreytta útivistarparadís á sumrin.

Hvað sem þig dreymir um að gera í fríinu má sannarlega finna í Kanada.

Verslanir, næturlíf og óviðjafnanleg matarmenning

Eitt af helstu einkennum Toronto er frábær og  framúrskarandi matarmenning borgarinnar. Fjölþjóðamenningin lætur ekki sitt eftir liggja í þessum málaflokki og hér má finna góðgæti frá öllum heimshornum í öllum verðflokkum, hvort sem fólk vill komast í bragðlaukaferðalag á rándýrum Michelinstjörnu-veitingastað (þeir eru 13) eða næla sér í geggjaðan götumat fyrir klink. Þessi mikla og blómstrandi matarhefð nær svo hámarki í fjölda matarhátíða sem haldnar eru árlega í borginni, s.s. Toronto Taste og Toronto Food Truck Festival sem enginn matgæðingur ætti að láta fram hjá sér fara.

Líkt og allar stórborgir er frábært að versla í Toronto og hér er að finna gríðarlegt úrval verslana, allt frá dýrustu tískuhúsum til sjarmerandi lítilli hönnunarverslana og svo má alltaf skella sér í vinsælu verslunarmiðstöðina Eaton Centre sem er í miðbæ Toronto.

Toronto lætur síðan ekki sitt eftir liggja í framúrskarandi næturlífinu þar sem blómstrandi listasenan, fjölþjóðamenningin og vinalegt andrúmsloftið sameinast um að skapa óviðjafnanlega stemningu. Hvort sem þú ferðast með ömmu þinni, leikskólabörnum eða vinahópnum, er vinalega stórborgin Toronto frábær áfangastaður fyrir alla.

Kanada er jú eitt af stærstu löndum í heimi