Skoða efni

Porto

Ódýrt flug til Porto

Sjarmerandi stræti og fallegar framhliðar

Porto í norðurhluta Portúgal er önnur stærsta borg landsins en á stórborgarsvæðinu búa um 1,7 milljón manns. Sjálf borgin telur þó aðeins um 40 km2 og 230.000 íbúa. Það er þessi blanda af stórri heimsborg annars vegar og gömlum og sögufrægum borgarkjarna hins vegar (í bland við fullkomið veður allan ársins hring) sem gerir Porto að einum vinsælasta áfangastað ferðamanna í Evrópu.

Porto er oft nefnd sem ein fallegasta borg Evrópu en stór hluti af ásýnd hennar einkennist af ánni Douro sem rennur í gegnum borgina og brúnum yfir hana en þar ber helst að nefna brú Dom Luís I. Þessi bogadregna járnbrú frá 1886 er á tveimur hæðum og gönguferð yfir efri hæðina ætti að vera efst á lista allra sem heimsækja Porto. Útsýnið þaðan er óviðjafnanlegt enda er Ribeira, gamli bær Porto, á heimsminjaskrá UNESCO. Þetta er töfrandi staður og besta leiðin til að upplifa gamla bæinn til fulls er að leyfa sér að týnast í þröngum steini lögðum strætunum. Byggingarnar eru margar hverjar frá 18. öld, skreyttar fallegum azulejo-flísum í bláu og hvítu. Þeir sem heillast af þessari tilteknu keramiklist ættu að kíkja á gullfallega lestarstöðina São Bento, sem minnir frekar á glæsilega höll en stoppustöð fyrir almenningssamgöngur. 

Dýrindis veisla á hverju götuhorni

Lífið í Porto snýst ekki bara um góða ásýnd og fallegar framhliðar. Hér skiptir innihaldið sannarlega máli. Í þessari veðurparadís leynist nefnilega dásamleg matarmenning. Það borgar sig að ganga um stræti Porto með galtóman maga til að tryggja pláss fyrir allar kræsingarnar sem þarf að narta í á leiðinni. Nokkrir spennandi réttir sem enginn má missa af eru t.d. metnaðarfull Francesinha-samlokan, saltfiskurinn, grilluð Alheira-pylsa og Pasteis de Chaves bakkelsið. Í eftirmat mælum við með klassískri möndluböku og Jesúíta-bakkelsi. Svo er alltaf hægt að fylgja bara innsæinu og láta nefið ráða för því það er enginn skortur á veitingum og vertum í Porto. En hin eina sanna stórstjarna í Porto er að sjálfsögðu portvínið. Portvín er í raun nefnt eftir borginni og framleitt meðfram ánni Douro. Gleymdu öllu sem þú telur þig vita nú þegar um þetta desertvín og leyfðu Porto að leiða þig í sannleikann um portvín. Við mælum sérstaklega með portvínssmökkun, leiðsögn og heimsóknum um portvínskjallara borgarinnar. Þeir sem vilja svo upplifa strangheiðarlega portúgalska stemningu ættu að kíkja við á Estádio do Dragão leikvellinum og reyna að ná miða á leik með FC Porto. Hvað svo sem þú gerir, muntu líklega snúa heim með nýja tilfinningu fyrir borgarfegurð, magnaðri menningu og stórfenglegum mat. 

Vinsæl afþreying í Porto

Við heimsækjum bestu tasca (litlir veitingastaðir) heimamanna og smökkum uppáhaldssnarlið (petisco) ásamt leiðsögn um æðislegan markað.

Leiðsögn um Porto, höfuðborg norðursins í Portúgal og gamla miðbæinn sem er á heimsminjaskrá UNESCO. Hér má sjá staði fulla af sögu, menningu og hefðum og hægt að fræðast um stræti og torg þessarar merkilegu borgar.

Lagt er af stað frá Douro höfn og siglt á milli fallegra sjónása í Porto. Á leiðinni má sjá stórfenglega staði eins og Ponte da Arrábida, gamla markaðinn (Alfandega), vínkjallara Porto og gullfallega Ponte Luis I brúna.