Skoða efni

Kaupmannahöfn

Ódýrt flug til Kaupmannahafnar

Ævintýralega höfuðborgin Kaupmannahöfn

Höfuðborg Danmerkur er svo sneisafull af óviðjafnanlegum ævintýrasjarma að leitun er að öðru eins. Gott frí í Kaupmannahöfn ætti að vera bæði afslappað og hressandi í þessari fallegu útgáfu af nostalgískri dúkkuhúsaborg.

Hér ráða litrík hús og steinlögð stræti ríkjum og hér er gott að lifa. Spyrjið bara Dani, eina hamingjusömustu þjóð jarðar. Í Kaupmannahöfn byrjar dagurinn á nýbökuðu vínarbrauði, hádegismatnum er skolað niður með ísköldum bjór og kvöldverðurinn er einstök upplifun á einhverjum af mörgum metnaðarfullum veitingastöðum borgarinnar. Inn á milli hjóla afslappaðir og léttlyndir Danir um borgina sína í töff strigaskóm með afskorin blóm í körfu. Það er ástæða fyrir því að heimurinn er með ævintýralegar hugmyndir um Skandinavíu. Sú ástæða er Kaupmannahöfn.

Það allra besta fyrir börn og fullorðna

Eftir að hafa skoðað heimsins krúttlegustu áfangastaði eins og skemmtigarðinn Tivoli, hringturninn Rundetaarn, litríku húsin við Nýhöfn og Litlu hafmeyjuna þurfa sumir mögulega að finna fullorðnari afþreyingu. Þá er þjóðráð að fara beint í Carlsberg-verksmiðjuna eða eitthvert af mörgum brugghúsum borgarinnar og bragða á bjórnum. Þá sem vantar eitthvað í fágaðri kantinum til að vega upp á móti barnslegum ævintýrablænum ættu að smakka á einhverri af þessum 32 Michelin-stjörnum sem dreifast á 25 stjörnuprýdda veitingastaði Kaupmannahafnar.

Eftir stórkostlegt kvöld af dýrindismat og drykk má skipuleggja skemmtilega dagsferð út fyrir borgarmörkin. Endurlifðu barnæskuna með ferð í Legoland, upplifðu dramatískur senur Hamlet í Kronborg-kastala eða farðu aftur á byrjunarreit og njóttu Bakken í botn, heimsins elsta skemmtigarði og mögulega þeim æðislegasta.

Leyfðu Kaupmannahöfn að umvefja þig með öllum sínum gersemum og sjarma fyrir unga sem aldna.